Gæsin
5 kg Gæs
Verður að þiðna rólega á tveimur dögum
Taka innyflin úr gæsinni (í plastpoka). Fjarlægja fituna, sem er að innan í gæsinni. Taka aðeins til hliðar til að steikja úr en henda restinni. Klippa fætur og vængi við næst síðasta liðamót, þannig að það séu svona smá stubbar eftir. Steikja í gæsafitunni það sem klippt var af gæsinni, fætur og vængi, með hálsinum og maganum vel og lengi þar til það er gegnsoðið. Soðið verður svo notað fyrir sósuna. Skola gæsina vel að innan og utan.
Fylling
750 gr. Hakk, setja kjötið af soðnu vængjunum, fótunum, hálsinum og maganum í hakkavélina ásamt lifrinni, hjartanu og einum lauk. Blanda þessu síðan saman við hakkblöndu sem fæst tilbúin frá Knorr eða Maggy (2 pakkar) og einu eggi. Forma langa rúllu sem passar inn í gæsina, ef blandan er of mjúk má bæta í hana raspi.
Sauma fyrir afturenda gæsarinnar, fyrst klippa smá af honum, híhí, því hann er annars of útstæður. Setja rúlluna inn í Gæsina og sauma fyrir hálsin með tvinna.
Þetta er undirbúningurinn áður en gæsin fer í ofninn.
Steikja og baka gæsina
Setja gæsina með brjóstin niður í steikingarpott og setja einn ltr. Af sjóðandi vatni yfir hana. Lokið síðan yfir og inn í ofninn við 160-180 gráður með undir og yfirhita og viftunni. Eftir 1 klst snúa gæsinni við og láta vera aftur í 1 klst.Varúð við að snúa gæsinni við, gæsin er heit og húðin viðkvæm. Bæta við vatni í pottinn ef það er búið að gufa upp. Eftir þessa tvo klst. Kemur gæsin á grillgrind með ofnskúffu undir, fyrst með brjóstið niður og í 1 klst. aftur en við 180-190 gráður. Stinga í gæsina með nál til að fitan geti lekið úr henni. Varúð við að taka ofnskúffuna út, mjög heitt!! Á ofnskúffunni verður að vera vatn, ekki of mikið, kannski smá úr steikingarpottinum. Bleyta gæsina á 20 mín fresti, etv með því sem er í ofnskúffunni eða bara með vatni.
Nú eru þrjár klst. liðnar. Snúa gæsinni þannig að brjósið sýni upp. Nú hefur gæsin tekið lit. Síðasta klst. þarf að kíkja mjög oft á gæsina. 15 mín fresti bleyta gæsina með saltvatni.
Eftir hálftíma er gott að skipta um ofnskúffu og taka það sem er nýtilegt í sósu úr ofnskúffunni sem var undir gæsinni en þar hefur safnast mikið af fitu sem ekki er gott að nota of mikið af í sósuna. Búa til sósu, etv smá rauðvín í hana og sósujafnara.
Eftir 3 ¾ klst er gæsin sennilega tilbúin. Það sést á litnum sem gæsin hefur fengið . Ef gæsin er of ljós þarf að hækka aðeins hitann eða jafnvel setja stutt á grill. Þegar gæsin er tilbúin losnar kjötið frá beinunum. Tosa laust í lærin og ef þau eru laus þá er hún tilbúin.
Taka gæsina út og skera beinin af og taka bringuna og mest af kjötinu, ef þetta er stíft þá er hún ekki tilbúin. Losa tvinnann. Skera bringuna (brjóstkassann)í tvennt og losa fyllinguna, helst að nota rafmagnshníf.
Berist fram með kartöflum eða klöße og rauðkáli
Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu


4 Comments:
þetta er ekkert smá girnilegt :)
Nú er bara að ná sér í gæs
kv Systa
Já ekki eftir neinu að bíða.....
kveðja
Helga
Mæli með henni þessari, hafði þessa uppskrift tvö síðastliðinn áramót, algert æði og fólk sem var í heimsókn hjá mér var mjög hrifið.
Greta(-:
TAKK
Var nú ekki farin að berjast í þýskunni en ekki viss um að ég hefði klárað mig í gegnum það! Prófa þetta örugglega.
Kv. Krissý
Skrifa ummæli
<< Home