Hestbak
Nína var í reiðtíma í gær. Við mæðgur klæddum okkur í okkar bestu vetrarföt því nú er komið frost í útlöndum. Já hvorki meira né minna. Enda svosem kominn tími til ekki satt. Ég fór í nýju angora sokkabuxurnar sem ég gaf Alex (honum er alltaf svo kalt á fótunum-en notar ekki nýju flottu sokkabuxurnar) og mér var heitt á meðan á reiðtímanum stóð. Þær eru fjórar saman stöllurnar í reiðtímanum og það var ansi góð stemming í gær, þrátt fyrir kulda. Þær báðu um að fá að fara á brautina utan girðingarinnar. Reiðkennarinn vill ekki fara þangað nema að hafa fylgd með sér. Sú fylgd varð ég, því ég var vel klædd og reiðurbúin að hjálpa. Eins og ég er nú hrædd við þessi blessuðu stórdýr þá var ég ansi brött og bar mig vel þótt ég segi sjálf frá. Það gekk allt vel í byrjun, þær fóru upp mjög bratta brekku, niður bratta brekku, á hlaup og svo á heimleiðinni átti að hlaupa aftur. KEnnarinn hljóp með fremsta hesti og ég fyrir aftan aftasta hest. Voru fjórir hestar í það heila. Nína var á seinasta hestinum og þegar við vorum að byrja að hlaupa á heimleiðinni, ég auðvitað líka, varð jú að halda í við hópinn, hafði bara gott af því. Þá fer hesturinn hennar Nínu, Funi að hoppa og skoppa, ekki prjóna heldur bara hoppar, þrjú hopp í það heila og í síðasta hoppinu þá dettur Nína af baki. Ég horfi á þetta en gat ekki neitt gert, kennarinn kom hlaupandi og Nína lá á grasinu. Var sem betur fer með hljálm og allt í lagi með það. En datt til hliðar og á höfuðið og fékk áfall sem gefur að skilja. Eftir huggun og skoðun höfuðs róaðist hópurinn og Nína fór aftur á bak, á öðrum hesti og ég þurfti að teyma hennar hest heim á bæ. Haldiði að hesturinn hafi ekki stígið á fótinn minn. Þvílík ósvífni..... Ekki bætir það hræðslu mína gagnvart dýrunum.....
Nína jafnaði sig á áfallinu en er aðeins með smá höfuðverk enn í dag en ég held að það sé ekki neitt til að hafa áhyggjur af. Eftir nákvæma líkamsskoðun eru allir líkamshlutar í lagi.....
Svona nokkuð getur alltaf gerst og kennarinn sagði við mig í lok tímans í gær að það væri kannski sniðugt að fá júdókennara til að kenna þeim að detta í aukatíma. Vonandi verður það bráðlega því það getur komið í veg fyrir stórskaða.


6 Comments:
Júdókennara til að kenna manni að detta!? Sniðugt :)
Mér finnst þú ótrúlega frökk Helga.. Þú stendur þig bara vel! En það er vonandi að höfuðverkurinn lagist hjá Nínu greyinu.
Ég hlakka til að sjá ykkur í janúar og þið eruð báðar náttúrulega velkomnar að koma suður til mín en ég verð að vinna 2. til 6. janúar.
B.kv. Þóra systir þín
ótrúlega frökk,HAHAHA segir sú sem stökk á bak á ókunnugum hestum sem hnáta..... say no more
takk fyrir heimboðið,
þín Helga
Vá, hefði maður fengið sjokk við að horfa á barnið sitt detta af baki....:-/
Mér finnst svolítið fyndið að þú sért svona hrædd við dýr en Nína alveg ótrúlegur dýravinur....;)
Já hún hefur þetta frá Alex, hann er svona dýravinur líka. :-)
Eins og ég segi alltaf, maður getur ekki verið á öllum sviðum!
Góð speki ekki satt. Á þennan hátt hefur maður alltaf svar á reiðum höndum.
Takk Helga fyrir skemmtilegt innlegg á lúðró síðunni ;)
Vona að þið fjölskyldan hafið það fínt í úttttlandinu og að þið eigið eftir að skemmta ykkur vel þegar þið komið í heimsóknina í janúar - þú átt mikið góða mömmu að bjóða ykkur til landsins :)
Dísa í lúðró.
Ég ætti nú að geta kennt Nínu eitt eða tvö hliðarföll... lærði nú hjá fallhlífarstökkskennara... Ekki braut ég nein bein við þær lendingarnar :)
Skrifa ummæli
<< Home