Heimsókn farin, þurrkari kominn
Guðrún Jóna kom í stutta heimsókn til okkar. Hún kom með lest frá Amsterdam, en þangað flaug hún með Icelandair. Það gekk allt vel og var gaman að fá hana. Ég hlakka til að Sigga hjúkka komi, kannski að versla jólagjafirnar??? Hún er alveg útlandasjúk..... Sigga skella sér..... Ég hætti að vinna 11. des.....
Mér finnst svo gaman að fá heimsókn. Ekki það að það sé eitthvað leiðinlegt hjá mér, alltaf nóg að gera ekki misskilja það en það brýtur upp hversdagsleikann að fá heimsókn. Við kjöftuðum um daginn og veginn, margt sem maður fer á mis þegar ég kemst aldrei í brunch með hjúkkunum. Kjaftasögur og breytingar á skipulagningu Spítalana og svona, nei smá grín. Við skelltum okkur til Munster þegar ég fór í skólann og Gunna náði að versla nokkrar jólagjafir og spiderman næríur fyrir Sæma :-) á meðan ég var í skólanum. Svo fórum við á veitingastaðinn sem ég fer með alla sem koma með mér til Munster (nema Alex greiið, hann hefur aldrei borðað þar....) og fengum okkur veislumat. Það hefur kólnað heldur betur hjá okkur núna upp á síðkastið þannig að það er tímabært að taka upp húfu og vettlinga. Var svosem alveg tímabært að það kæmi haustveður, nú í lok nóv!
Við skelltum okkur svo í gær til Dusseldorf, já ótrúlega slöpp, slepptum Íslandsdögum í Köln. Fórum með Gunnu til að hitta Gumma sem var á sýningu í Duss. og saman héldu þau áfram til Hollands þar sem þau eiga vinafólk. Við áttum saman skemmtilegan dag í stórverlun í Duss og náðum að eyða smá pening. Eftir að hafa skutlað þeim á lestarstöðina og þau rétt náðu lestinni fórum við og keyptum okkur loksins þurrkara. Ég er búin að láta mig lengi dreyma um að eiga einn slíkan því þvottahúsið okkar er svo kalt og það er svo lengi að þorna á snúrunum ef kalt er í veðri. Nú skellir maður þvottinu í þurrkara og lætur hann svo þorna alveg á snúrunum en þetta er ráð sem Þórunn kenndi mér. Gott mál....
Í gærkvöld þegar við komum heim skelltum við okkur svo á ljósahátíð í miðbænum, það var verið að kveikja á jólaljósunum. Fengum okkur franskar, bratwurst og gluhwein, æðislega jólalegt. Enduðum svo kvöldið á að leyfa Nínu að fara í Sims en hún keypti sér það fyrir sína peninga og við enduðum í lúr á sófanum yfir Starwars, nýjustu myndinni. :-)
Já og svo þarf maður aldeilis að fara að taka í rassinn á sér og skreyta og búa til aðventukrans og gera jólalegt. Fyrsta aðventa um næstu helgi, gaman gaman...... Kannski við skellum okkur í göngutúr með garðklippurnar að sækja okkur smá greni... algjörir.. og tína greinar með rauðum berjum, það er svo fallegt á krans finnst mér. Ætla að splæsa í nýjan borða fyrir slaufurnar á kransinn en ég held mig við rauð kerti. Rautt og gull eru mínir jólalitir og hafa held ég lengst af verið.
Í kvöld er enginn danstími, námskeiðið er búið, um næstu helgi er lokaball, frá 18:30-23:00 spurning hvað við gerum við Nínu á meðan, kannski skreppum heim á milli eins og Alex var búinn að stinga upp á, er mjög stutt heim frá danskólanum.
Jæja látum þetta gott heita. Eigið góða helgi það sem eftir er af henni ykkar Helga


3 Comments:
Oh, við Lúlli værum alveg til í fá okkur bratwurst og gluhwein(-:
Þetta vantar á Íslandi en það er sjálfsagt veðrið hér sem bíður ekki upp á þessa stemmingu.
Þú færð þér einn bolla fyrir okkur(-:
Greta(-;
Skal gert Greta mín. Kannski maður hiti bara fyrir ykkur eina flösku þegar þið komið í jan. Er komin dagsetning á prófið?
kveðja
Helga
Já, það er 12 jan. er búin að vera löt að læra eða finn mér alltaf eitthvað annað að gera(-;
GBB
Skrifa ummæli
<< Home