þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Orðlaus

yfir laginu sem fer fyrir Íslands hönd í sönglagakeppnina í maí.

Hvað er eiginlega að gerast með Íslendinga?
Ég meina allt í lagi að gera grín en það má líka fara þokkalega yfir strikið.

70.000 manns á að hafa kosið þetta lag, nú þá til hamingju Ísland!!!!

13 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Íslendingar eru bara komnir yfir strikið almennt, það er enginn normal lengur :)
kv Systa

3:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er sammála...kaus það ekki en sonur minn gerði það og var stoltur af því. Helga-er 20. vikan ekki að verða búin hjá þér?:)

3:59 e.h.  
Blogger Helga said...

Jú þú telur alveg með....
Var einmitt í 20 vikna skoðun í dag og gekk mjög vel.

5:14 e.h.  
Blogger Bippi said...

Snorri kaus Silvíu Nótt og ég kaus ekki neitt....svona held ég að það hafi verið á mörgum heimilum. Það eru sem sagt krakkarnir sem ákveða hver keppir fyrir Íslands hönd í Júróvisjón;)

Annars er mér svo sama um þetta, það skiptir held ég engu máli hvaða lag við sendum, við fáum yfirleitt ekki mörg stig.

Það verður sem sé spennandi að vita hvernig Evrópa tekur henni Silvíu Nótt......

...það versta við þetta allt saman er samt peningurinn sem fer í þetta. Forkeppnin kostaði 70 milljónir, svo á eftir að bætast við allur annar kostnaður við ferðina og fleira:o/

11:13 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég segi nú bara: ÁFRAM SYLVÍA NÓTT!!!

Langbesta lagið og langflottasti flytjandinn!!!!!

4:37 e.h.  
Blogger Helga said...

Þetta minnir mig svolítið á það þegar hann Páll Óskar tók þátt. Var flott lag en einmitt svona á mörkunum. Það versta finnst mér málið í laginu og að þau fari úr fjötrum sínum. En sem betur fer er mismunandi smekkur fólks og hver veit nema hún eigi eftir að bora sér í hjörtu heimsbúa.

Þjóðverjar eru nú líka meistarar í að koma með sérkennileg lög þótt ekki sé meira sagt, tek undir það hjá þér Inga.

10:13 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ohhhh þýska lagið Wadde hadde do de da eða eitthvað svoleiðis mér fannst það alger snilld!

12:26 e.h.  
Blogger Bippi said...

Það er svolítið fyndið að enginn þykist fylgjast með Júróvisjón en samt hafa allir mjög sterkar skoðanir um lögin og flytjendur þeirra;)

Sylvía er svolítið þannig að annað hvort hatar fólk hana eða fílar hana í tætlur.

7:23 e.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Sammála seinasta kommenti frá Heiðrúnu... en málið er (var ég að komast að í tíma um daginn) að þetta er mjög 'póstmódernískt' hjá henni og víst klassískt dæmi um 'óþekku stelpuna'. Í raun hefur orðið til 2. alda af femínisma sem gengur einmitt út á einstaklingshyggju. „Ég má vera ég sjálf eins og ég vil, ég er kynvera og ég hafna þeirri hugmynd að vera pen og sæt stelpa, sammvinnuþýð og hlédræg. Ég má alveg drekka og dópa eins og ég vil, sama þó að það hafi afleiðingar.“
Þetta er semsagt mjög póstmódernískt hjá henni... en það er spurning hvort að allir litlu krakkarnir og aðrir en Íslendingar fatti pælinguna á bak við þetta...

10:02 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Amk var ég ekki að fatta neitt og finnst það ekki flott sem hún gerir, en það er jú bara mín skoðun. Ekki það að ég mundi gera þetta eitthvað betur, ekki skilja mig svo.
kveðja
Helga

1:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey you, seriously cool, I’m talking to you
I’m Silvia Night shining in the light
I know you want me

Born in Reykjavík, real talented, no hill-billie freak
I know I’ll win the fucking finals, the others ain’t in

Congratulations Iceland, I was born here
I’m Silvia Night and I have no fear
Eurovision nation gets a chill when I come
I’m born to win this thing, where I am from
töff, töff, töff

My song, seriously cool, no 90’s filthy shit
It’s tough okay, it isn’t gay
I’ve come here to stay
The other bitches are all soiled
but I am unspoiled
You love me you worship me, but still just so hopeless

Congratulations Iceland, I was born here
I’m Silvia Night and I have no fear
Eurovision nation gets a chill when I come
I’m born to win this thing, where I am from
je!, je!, je!


Iceland, Congratulations Iceland, Congratulations Iceland,

Congratulations Iceland, Congratulations Iceland, Congratulations Iceland,

Congratulations Iceland, Congratulations Iceland.

Ring ring ringRing ring ring Ring ring ring Ring ring ring


Congratulations Iceland, I was born here
I’m Silvia Night and I have no fear
Eurovision nation gets a chill when I come
I’m born to win this thing, where I am from


Congratulations Iceland, I was born here
I’m Silvia Night and I have no fear
Eurovision nation gets a chill when I come
I rock this contest, get plenty of points
töff, töff, töff
Textinn að mér skilst á ensku :)
B.kv. Þóra

6:46 e.h.  
Blogger Helga said...

úúú jeee

9:27 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ég myndi vilja að hún myndi áfram syngja "Til hamingju Ísland" þó svo að restin væri á ensku.....

12:56 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters