sunnudagur, október 22, 2006

Ein ég sit og sauma

inní litlu húsi....

Ég var á klúbbshitting í kvöld og Alex er enn á íþrótta"árshátíð". Nína og Móna voru að passa, Balthasar fór að sofa klukkan átta og svaf bara eins og beibí. Enda er hann algjört Beibí. Ég ætlaði nú aðeins að kíkja til Alex og félaga hans úr íþróttaklúbbnum en klukkan ellefu þegar ég var búin að koma heim og kíkja þá var of erfitt að fara aftur, stelpurnar að fara að sofa og Balthasar byrjaður að rumska. Það er örugglega mjög gaman hjá íþróttavinunum og konum saman. Hver veit, kannski fer ég bara næst með!

Það er nú ekki amalegt að geta skilið þriggja´og hálfsmánaða gamalt barnið sitt eftir hjá systur sinni! Og hann sefur allann tímann...

7 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Já Balthasar er algjör draumur :) Það er svo sannarlega gott að hafa svona fína barnapíu, þetta þekki ég vel.

Það er verst að þú gast ekki farið með Alex á árshátíðina, hefðir þú ekki átt að sleppa klúbbhittingnum og fara frekar með bóndanum ?

12:43 e.h.  
Blogger Bippi said...

Já, það er kosturinn við að hafa mörg ár á milli barna. Snorri hefur passað Heklu alveg frá fæðingu;o) Þetta gefur manni óneitanlega frjálsari hendur!!

7:17 e.h.  
Blogger Karen said...

Ég hafði rosalega gaman af því að passa litla bróður minn og fannst hann alveg það flottasta í heiminum. En það er rosa lúxus að hafa góða barnapíu :)

7:18 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er eðlilega mjög afbrýðisöm enda ekkert farin að fara frá honum Sæta mínum. Er með rauðan hring í kringum 3. nóvember á dagatalinu en þá kemur mamma í heimsókn. Það er algjör lúxus að eiga svona duglega dóttur það er alveg á hreinu, og ertu að segja mér að krúttið sofi allar nætur??

10:22 e.h.  
Blogger Helga said...

Já það er yndislegt að eiga svona litla dúllu og hún Nína er alveg ómetanleg á allann hátt. Ég er mjög stolt af henni þrátt fyrir að stundum velti ég óneitanlega fyrir mér hvor okkar sé mamman??? Þegar það koma spurningar hvort maður sé með þetta og hitt þegar maður er á leið út úr húsi. Mamma, ertu með bleyju og samfellu ef það fer útfyrir og svona!!! Á föstud. sagði hún við mig, mamma ekki hafa neinar áhyggjur, ég gef honum bara te ef hann vaknar!!! Ég alveg Nei elskan, hringdu í mig ef hann vaknar.....

Svana mín, hann Otis er örugglega alveg jafn góður í pössun þegar þú bara lætur á það reyna, það er erfitt fyrst, fyrir mömmuna.... En hann Balthasar vaknar tvisvar á nóttunni til að drekka þannig að það komi nú ekki til neins misskilnings. Ég er einmitt frekar þreytt á þessari spurningu, og sefur hann allar nætur!!!! En svo segja sumir að brjóstabörn sofi ekki heila nótt fyrr en seinna! Ég hugga mig bara við það. Sefur Otis allar nætur?

11:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nei Otis sefur þegar hann gleymir að drekkan enda barnið orðið 9 kíló! Stundum kemur fyrir að hann nær 4 tímum án þess að vakna og þá verð ég glöð. Og það er engin rútína komin á hann enn. Annars er ég að fara að byrja að gefa honum hrísgrjónagraut í kvöldmatinn og sjá hvort það slær á þetta síhungur. S x

2:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nína svaf nú varla heila nótt þar til hún var 5 ára, þá tókum við svefnvenjur hennar föstum tökum :-(
Kveðja
Helga

8:28 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters