sunnudagur, október 22, 2006

Vivaldi

Nína er að æfa á fiðluna verk sem eru stuttir og auðveldaðir kaflar út fjórum árstíðum eftir Vivaldi. Hún er þessa dagana mikið að hlusta á verkið í fullri lengd og mynd. Er þetta ekki eitthvað sem allir hafa farið í gegnum. Svona unglinga "dæmi"? Amk gleymi ég því ekki. Yndislegt!

3 Comments:

Blogger Karen said...

Ætli Vivaldi sé eitthvað tengdur unglingaveikinni, man eftir að vera sjúk í árstíðarnar 4 þegar ég var svona 13-15 ára!!

12:37 e.h.  
Blogger Helga said...

Jú það gæti verið, ég var sjúk í Vívaldi á tímabili, man reyndar ekki hvað ég var gömul, man svo lítið frá því í den,,,, en það er samt skondið að fylgjast svo með því sama gerast hjá barninu sínu.

1:22 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ég hef aldrei verið sjúk í Vivaldi...hlustaði samt slatta á Mozart á tímabili (hann gerði svo flottan klarinettukonsert;o))

Sem unglingur hlustaði ég líka á gamla tónlist....þ.e. Pink Floyd, Led Zeppelin, Bítlana, Stones ofl....amma sagði alltaf að ég væri fædd á vitlausu tímabili;o)

En gaman að þessu...og þetta eykur alveg örugglega áhugann hjá Nínu!!

1:28 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters