þriðjudagur, nóvember 14, 2006

Alveg met

Það er alveg merkilegt þegar ég er búin að ákveða að ætla að gera eitthvað á heimilinu, s.s. þrífa, strauja, blogga eða leita að tilboðum í hitt eða þetta fyrir verðandi húsið okkar, þá þarf einn lítill mikið á barmnálægð að halda eða bara nærverunni frekar heldur en að leggja sig bara! En maður er nú ekkert að stressa sig á því þar sem enginn þrýstingur er á að ég skili mínu á heimilnu. Þetta er bara alveg merkilegt finnst mér.

Í dag var Nína heima, hún fór ekki í skólann því hún er búin að vera svol. kvefuð síðan um helgina og þegar þetta skánaði ekki á degi tvö þá var sú ákvörðun tekið að láta hana vera heima þannig að þetta yrði ekki að einhverju langvinnu heilbrigðisvandamáli, nei ég segi bara svona en hún hefur nokkrum sinnum verið ansi lengi kvefuð og það hefur oftar en ekki endað í sýklalyfjatöku. Í dag átti svo að nota daginn í að læra fyrir stærðfræðipróf og latínupróf en sökum listamannsverkefna og miklum áhuga á því sviðinu var eitthvað takmarkað lært!

Ég náði nú að hringja í skólfluna í dag og fá gróflega áætlaðan kostnað við að grafa og fylla undir húsið okkar, skemmtileg svör sem ég fékk þar, ha, nei það getur ekki verið að það sé lóð á Skógarflötinni, það á bara eftir að grafa fyrir Þráinn!!! Þarna kom það, við erum seinust, ásamt Þránni.... og ég sem er alltaf svo tímanlega! STefnan er semsagt tekin föstum tökum og hananú, ef einhver þekkir áreiðanlegan teiknara sem getur tekið að sér raf., hita., lagna og burðarþolsteikningar, sá hinn sami gefi sig fram!

4 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Hæ hvernig er Nína?
Ég veit að Bragi Þór er í því að teikna rafmagnsteikningar um aðra veit ég því miður ekki. Hvað með hitalagnir, ætlið þið að hafa þær í gólfum eða ofna?

Bestu kveðjur

11:15 f.h.  
Blogger Helga said...

gólfhita, já ætti ég að skrifa Bjarna bara Email? Nína er svona að koma til, var heima í einn dag og svo fór hún í skólann á miðvikud. (erfitt stærðfræðipróf) og í dag erfitt Latínupróf.... en það er gaman á eftir, barnfóstrunámskeiðið... en hún er enn með smá höfuðverk stundum og smá hor og svona en ekkert til að vera heima yfir! Ég er hörð móðir, enda alin upp af hörku móður!! Kveðja úr 20 stigum....

2:00 e.h.  
Blogger Helga said...

Braga átti þetta að vera!

2:01 e.h.  
Blogger Bippi said...

Snorri er einmitt líka búinn að vera heima tvo daga í vikunni með kvef, hálsbólgu og pínu hita fyrri daginn.

Þetta er víst að ganga hérna....

Því miður þekki ég ekki teiknara (fyrir utan Alex);o)

Góða helgi!!!

8:44 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters