Martins hátíð

Er haldin í dag. Engin sérstök hátíð á okkar heimili en Alex hefur mjög oft borðað Gæs á þessum degi en það er viðeigandi matur fyrir St.Martins. Krakkar fara í draugagöngu með laterne og fremstur í flokki fer sjálfur St.Martin á hesti og með skikkju. Einmitt svona leikskólahópur kom gangandi framhjá húsinu okkar og við vorum beðin um að setja kerti út í glugga eða fyrir utan hurðina hjá okkur ef við gætum, miði þess efnis kom nokkrum dögum áður í húsið. Þetta voru örugglega fimmtíu eða fleiri saman og greinilega mjög gaman hjá þeim.
Við erum að fara í saumó á morgun, til hennar Svölu, vonandi snjóar ekki! En það er ansi mikið búið að kólna hjá okkur og rigning en sem betur fer ekkert ofsaveður eins og verið hefur á Íslandi undanfarið.
Jæja elskurnar, hafið það gott um helgina og ég bið ykkur vel að lifa


3 Comments:
Mmmm....girnilegur matur....
Það er líka svona dagur hérna í DK. Mortens-aften heitir hann held ég.
Við höfum ekki ennþá prófað að elda önd eða gæs hérna en það kemur nú fljótlega að því....þetta er svo miklu ódýrara en heima;o)
Vonandi áttuð þið góðan dag
Það er búið að vera óþverraveður hér á klakanum og það spáir þvílíku frosti á næstu dögum 12 stiga gaddur er sko ekki alveg mitt uppáhald!
Bið að heilsa :)
Við erum nú vön að hafa Gæs en klikkuðum á því þessa helgi, væri nú alveg til í að prufa önd, kannski maður bíði eftir myndum frá mömmu en hún gerði appelsínuönd a la maggi bróðir, með grand mariner í sósunni og alles. Við erum mjög hrifin af gæs en önd á víst að vera eitthvað frábrugðin á bragðið...
Skrifa ummæli
<< Home