Fyrsta.....
Það er alveg frábært þegar maður er lítill og gerir allt í fyrsta sinn því maður hefur jú aldrei gert neitt áður....
Nema það er ekki gaman að fá fyrstu ónæmissprautuna sína! Hana fékk Balthasar í gær hjá lækninum og það strax tvær sprautur með samtals 7 virkum og óvirkum sjúkdómsvöldum. Þetta er nú ekkert smá fyrir ónæmiskerfið, þegar maður hugsar út í það þá er maður alltaf að passa sig, að fara ekki þar sem margir eru, s.s í kringluna eða álíka og lætur lítil börn með hor helst ekki vera að knúsa hann, allt voða sterílt þannig og svo fær hann 7 sjúkdómsvaldandi efni eða mótefni fyrir sjúkdómnum á einu bretti. Ó næmiskerfið hans sagði stopp, hingað og ekki lengra, hann fékk hita í gær og er búinn að vera svolítið lítill, sem er bara krúttlegt en vonandi fer honum að líða betur. Hann er sofandi eins og er. Í sambandi við ónæmissprautur þá er þetta vissulega mikið rætt umræðuefni, það eru þar á meðal frægar barnaveikir sem eru varla til í hinum vestræna heimi í dag, Tetanus er líka varla greindur í okkar samfélagi. Lömunarveiki (polio), dipthterie, pertussis eða keuchhusten, hepatitis B, hemophilus influensa b, tetanus og svo nýtt síðan í júlí pneumokokken (eyrnabólgubakterían). Hvar endum við eiginlega?


6 Comments:
Já, þetta getur verið mjög mikið hitamál hjá fólki, sérstaklega þeim sem eru á móti sprautum!
Ég fékk að heyra rök með hvoru tveggja þegar að ég var með Heklu litla...ein sagði að ég ætti að treina þetta eins lengi og ég gæti að láta hana í sprautu á meðan að hjúkkurnar sögðu að það væri algjör fásinna!!!
Ég var ekkert að stressa mig neitt en fór samt með Heklu svona sirka á réttum tíma. Hekla hefur alla tíð verið við hestaheilsu (fyrir utan dagana sem þið voruð hjá okkur;o)) og það verður nú bara að teljast gott er það ekki??;o)
Vonandi hressist sá litli von bráðar. Fín mynd af honum. Bestu kveðjur frá okkur.
Greyið lilli að vera lasin :(
En nýju myndirnar eru alveg hrikalega sætar!!
úúú þetta er mikið hitamál, mikið rætt í nýju vinnunni minni á heilsugæslunni. Þessir sjúkdómar eru svo að segja horfnir á vesturlöndum vegna þess að við erum að bólusetja. Þessir sem ekki láta bólusetja börnin sín og segja svo "þau urðu aldrei veik" gera sér kannski ekki grein fyrir því að það er okkur hinum að þakka sem látum bólusetja börnin okkar að börnin þeirra fá ekki þessa sjúkdóma. Við tökum miklu meiri áhættu að bólusetja ekki en að gera það.
Vona að litla krúttinu fari að batna, setja bara stíl í rass og þá verður hann góður,
kv Systa
Já það er rétt Inga, þetta er alveg nýtt í kerfinu hér og er nú síðan í júlí bæði meningokokkar og pneumokokkar nýjir í sprautunum. Og bara dýrt fyrir börn sem eru eldri en 2.ára amk í Þýskalandi.
Systa þetta er alveg rétt hjá þér, það komu upp alvarleg tilfelli um Mumps eða Masern, (brjóstagjafa heilasigtið ferkar gróft þessa dagana, þal minnið lélegt!) en það varð til þess að þeir sem ekki gátu sýnt fram á að vera með mótefni þurftu að vera í 5 vikur heima frá skóla, þetta voru skólabörn. Ég gaf vissulega stíl og hann er búinn að jafna sig núna, reyndar 37,5 en það er nú ekkert. En nú er semsagt vaxtarkippur á ferðinni, bara drekkandi allan daginn og 3 á nóttunni, gaman, gaman... en við kúrum í staðinn fram eftir öllum morgni! :-)
Aumingja Balthasar. Það er svo vont að fá svona sprautur. En iss, ef hann er eitthvað líkur þér þá rumpar hann þessu af...
Skrifa ummæli
<< Home