Halloween
Er í dag, það þýðir að krakkar klæða sig í draugaleg föt og ganga í hús og segja slikk eða grikk.....
þá gefur maður slikk....
Nína er í draugapartý hjá einni úr bekknum, hún fór í svört föt og svo hittust þær fyrst hjá einni vinkonunni til að mála sig draugalega, ótrúlega gaman að gera svona saman ekki satt. Hún gistir svo hjá einni af þeim og við sækjum hana á morgun, en hér er frídagur á morgun þannig að það geta allir sofið út, ekki bara ég og Balthasar.


4 Comments:
Gleðilega Hrekkjavöku ;)
Og vona að þið njótið útsofelsisins :þ
Vonandi hefur Nína átt góðan dag,O)
Er snjór hjá ykkur???
Já það var svaka gaman hjá Nínu, þær fóru í hús að safna slikki og gekk bara bærilega, svo borðuðu þær spagetti hjá vinkonunni þar sem partýið var og dönsuðu svo fjórar saman sem voru í partýinu, ótrúlega gaman.
Nei Heiðrún ekki enn, en það er búið að spá snjókomu, það er þá bara eitthvað sem hverfur eftir hálftíma.
Í dag er frídagur hjá okkur, svaka næs, sofa út og hafa letidag.
Bestu kveðjur
Skemmtilegt, þetta er eins og öskudagurinn heima!! Flott teppi sem Balthasar fékk. Bestu kveðjur héðan.
Skrifa ummæli
<< Home