Nóvember
Já það er ekki lengi að líða tíminn þessa stundina. Hann hreinlega flýgur áfram, það er alveg sérlega skrýtið hvað við höfum oft mismunandi tímatilfinningu. Ef við bíðum spennt eftir einhverju er eins og hver sekúnda þurfi mínútu til að fara frá okkur en ef við njótum lífsins eins og það er og erum ánægð með okkur þá hreinlega flýgur tíminn frá okkur. Ég er á einhverju svoleiðis skeiði í lífinu núna. Finnst ég ekki ná að gera neitt þannig og samt líður tíminn frá mér alveg í andköfum. Það er bara fínt, ég nýt þess að lifa og finnst gaman með fólkinu sem ég hef í kring um mig, er mikið á flakki og upplifi margt þrátt fyrir að vera bundinn litla krílinu mínu með brjóstagjöfinni.
Í dag er foreldradagur í skólanum hjá Nínu, við bíðum spennt eftir því sem við fáum að heyra þar, hún stóð sig með prýði í seinustu prófum en byrjun skólaársins var ekki eins og við áttum von á. Hún Nína er nú voða dugleg í skólanum en það þyngist óðum enda komin í 6.bekk daman. Pabbi hennar er búinn að vera aðeins að styðja hana í stærðfræði, það flæktist fyrir henni með brotareikning þegar þarf að finna sama nefnarann og að hluta til þurfti maður að fara í hundraðatölur til að ná nefnaranum.
Ég ætla að fara með snáðann í auka læknisskoðun í dag, hann var óþarflega rauður á bleyjusvæði og var líka með roð í auga, er reyndar allt á batavegi en kannski er þetta bara út af snöggum kulda hjá okkur. Hann er alltaf jafn yndislegur, drekkur eins og honum sé borgað fyrir það en er hættur að gera stórt daglega, nú er það bara með margra daga millibili, 5 eða jafnvel 6 dagar á milli, mér leist nú ekki á blikuna en hann er sæll og glaður og þá er þetta víst í lagi hjá brjóstakrökkum.
Klæða sig vel í dag og krossa fingur....


6 Comments:
Ég fæ ÚTBROT af brotareikning, en ég er líka stærðfræðilega heft :)
Mér finnst tíminn líka æða áfram og það verða komin jól löngu áður en maður veit af.
Ég líka....svo á Snorri svo auðvelt með þetta....hann skilur ekki af hverju meira en helmingurinn af bekknum skilji ekki brotareikning :o/
Mér finnst haustið bara hafa flogið frá mér...en ég er að sjálfsögðu bara ánægð með það...búin að kynnast helling að nýju fólki og upplifa margt skemmtilegt;o) Þetta tengist ekkert því að maður sé að eldast..nei, nei nei,nei....;o)
úff já þetta með tímann, ég skil bara ekkert í þessu hvað hann flýgur frá mér þessa dagana. það eru t.d. bara 8 helgar eftir til jóla :)
jeminn, maður ætti kannski að fara að hugsa út í gjafir!!
Alveg er ég sammála með tímann...hann bara hverfur út í buskann.
Ég er líka stærðfræðiheft eins og Karen sagði...verð að nota þetta orð, það er flott. Ætli maður geti notað það í tölfræðiprófinu til að hækka einkunina??
Já tíminn líður ótrúlega hratt, ég hef þó aldrei heyrt að tíminn líði frá manni í andköfum , en skemmtilega orðað hjá þér Helga mín;)
Ég er búin að frétta hjá þér að Nína fékk mjög góða umsögn hjá kennurunum eins og ég átti von á og að Balthasar er að lagast eða líklega orðin góður núna.
Bestu kveðjur.
Skrifa ummæli
<< Home