Flakkararnir í Coesfeld
Það er naumast að fjölskyldan er búin að vera á flakki. Við fórum til tengdafjölskyldunnar um helgina, þau búa nálægt Frankfurt, það var gaman að hitta alla aftur, við gistum hjá Christoph bróður Alex og heimsóttum ömmuna, afann og Alex fór á skólahátíð í Gymnasíum sem hann var í, ég var reyndar líka í þessum skóla þegar ég var skiptinemi. Það var vínsmökkun hjá pabba Alex og vorum við þar í nokkra tíma og Alex lét bragðlaukana aldeilis hafa fyrir því að smakka heilan helling af vínum, hvítvín, rauðvín, svo voru líka rósavín, freyðivín og sherrý en Alex smakkaði það ekki. Ég horfði á. En það er ekki amalegt að hafa svona vínsérfræðing sem gefur sér tíma í að útskýra vínin fyrir manni, líka sjaldan sem það gefst tækifæri til að smakka svona rosamargar mismunandi tegundir. Eftir vínsmökkunina fór Alex svo í skólann og var það voðalega gaman, bara eitt svaka reunion, fjörtíuára reunion. Hann hitti nokkra gamla félaga og kennara, mikið rætt og gaman. Á meðan vorum við í heimsókn hjá Eveline og höfðum það notarlegt.
Stubbur litli er alltaf jafn mikil dúlla, brosir framan í heiminn og er bara ánægður með lífið. Brjóstið er enn nóg fyrir hann og við erum öll sátt þannig að þetta er bara yndislegt.
Nína er líka algjör dúlla og hún er svo góð við bróður sinn, alveg erum við rosalega heppin með hana.
Í dag er frekar hráslagalegt úti, við notum samt tækifærið og förum í göngutúr á meðan Nína er í reiðtímanum. Það er langur dagur hjá Nínu í dag, enskupróf í morgun, svo reiðtími og svo fiðlutími og svo latínupróf á morgun, óóójjjjeeee enn þá er bara að spýta í hnefana og vera dugleg.


5 Comments:
Þið hafið það greinilega gott og njótið þess að vera til;o)
Já, maður þarf stundum að klípa í handlegginn á sér og hugsa um hve heppinn maður er með börnin sín og bara í lífinu yfirhöfuð.
Það eru ekki allir eins heppnar og við....
Já það má með sanni segja að það er nóg að gera hjá ykkur fjölskyldunni. En það er nú bara gaman að hafa eitthvað fyrir stafni.
Gangi Nínu vel á morgun. Ég skal reyna að hugsa til hennar á latínu og ensku :)
B.kv. Þóra
Takk fyrir stelpur mínar. Bestu kvedjur
Helga
Ég skil ekki alveg fjörtíuára reunion, er það fjör á tíu ára reunion, varla fjörutíuára??? Já Helga mín við spýtum bara í LÓFANA, ég hef ekki heyrt áður að spýta í hnefana. Þú ert alveg fábær, ég hlakka til að heyra þig lesa dönsku aftur :)
Nína mín, gangi þér vel tuff, tuff...
Bestu kveðjur.
Eins konar fjörtíu ára þ.e. skólinn hélt upp á fjörtíu ára afmæli sitt og bauð öllum nemendum sem höfðu verið í skólanum á þessum árum. 37 útskriftarárgangar því fyrstu þrjú árin útskrifaðist enginn. Um að gera að redda sér, er það ekki, ég fer bara í íslensku fyrir útlendinga þegar við flytjum heim!!!!
Skrifa ummæli
<< Home