miðvikudagur, janúar 10, 2007

Fiðringur

Það er ekki laust við smá fiðrildagang í maganum á mér þessa dagana. Allt að gerast og meira en það.... bara svona til að fá fólk til að finna fiðringinn með mér þá segi ég ekki meir um þetta mál.

Spennan magnast í sambandi við atvinnuleit og flutning og allt sem því viðkemur. Ég er búin að redda fólki í teikningar, vandamönnum og góðu fólki í gegnum vini. Það er nú alveg ótrúlegt hvað það er mikilvægt að þekkja rétta fólkið. Sumum finnst nú miður þessi klíkuskapur sem virðist vera hvívetna en þegar það kemur okkur að góðum notum þá notum við það er það ekki um alla... Ég er amk þannig, þoli alveg þegar klíka kemur öðrum að góðu en trúi líka ávallt á það góða þannig að minn tími mun koma, það er bara þannig, tek undir þetta með henni Jóhönnu, eða var það Jónína? Ég er alveg komin í rugl með þetta! Amk kom Nína heim úr skólanum í gær og spurði mig hvenær við eiginlega flytjum, ég alltaf jafn óákveðin í svari en hún vildi vita hvort það væri fyrir eða eftir sumarfrí í skólanum. Ég sagðist enn ekki geta sagt til um það en það væri mjög líklega fyrir byrjun á næsta skólaári. Já sagði hún þá get ég ekki lengur verið með í leikritahópnum því það á ekki að frumsýna leikritið fyrr en í haust. Já svo einfalt var það. En það var svosem engin eftirsjá, meiri tilhlökkun hjá henni. Skólinn er búinn að byrja vel hjá henni þessa vikuna, á mánudaginn var fyrsti skóladagur eftir jólafrí og hún er búin að koma heim með svo flottar einkunnir í þýsku, stærðfræði og latínu, það verður spennandi að vita hvað hún kemur með í dag??? Svo eru einkunnaafhending í næstu viku.....

Nú er farið að vora hjá okkur, það stefnir í að laukarnir sem ég setti út í blómaker séu að teygja úr sér og hver veit nema þeir ruglist aðeins og fari að líta dagsins ljós. Amk eru margt farið að blómstra sem annars er mun síðar á ferðinni.

Ég hlakka til að fá heimsóknir sem eru búnar að tilkynna komu sína (líka þær sem ekki eru búnar að tilkynna komu sína!!!) Það verður gaman hjá okkur í byrjun feb þar sem einn þriðji af Skagafjölskyldum í Bögehaven ætlar að leggja í langferð til okkar. Svo á ég nú von á mömmu og Þórði með hækkandi sól og bara gott af því að segja. Annað veit ég reyndar ekki en þið munið, allir velkomnir og nú fer virkilega hver að verða síðastur.

7 Comments:

Blogger Bippi said...

Nína klikkar ekki á því frekar en fyrri daginn í sambandi við skólann.

Hún hefur nú að öllum líkindum möguleika á því að taka þátt í söngleik í Grundaskóla á unglingastiginu.;)

Nú er ég BARA SPENNT að vita hvað er í gangi hjá ykkur.

Ég fer niður á lestarstöð í dag til þess að tékka á lestarferðum;o)

9:53 f.h.  
Blogger Gunnur said...

Gleðilegt nýtt ár kæra fjölskylda!
Greinilega eitthvað spennandi að gerast hjá ykkur á þessu ári, bíð spennt eftir frekari fréttum...

Knús á ykkur öll frá B4

11:31 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Ferlega gerir þú mig forvitna Helga, hvað er að gerast?

Ég skil Nínu vel, það er erfitt að bíða í óvissu. En þetta kemur vissulega allt í ljós þegar rétti tíminn kemur. Já, þinn tími mun koma eins og Jóhanna sagði.

Er laust hjá ykkur frá þriðjudegi til föstudags (13.-16. feb)?
Ég stefni á að setja nokkrar línur inná bloggið mitt í dag!!

2:47 e.h.  
Blogger Systa said...

í þessi skipti sem ég hef fundið fiðring í mínum maga hafa komið út börn, ertu nokkuð að hinta okkur með svoleiðis...
Hlakka mikið til í að fá ykkur til landsins, vorum einmitt að ræða það í síðasta brunchi hvenær þið mynduð flytja.

6:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Nei þetta er ekki svoleiðis fiðringur og þykir mér það miður að hafa vakið slíkar hugmyndir hjá lesendum...
kveðja Helga

7:34 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ. Hlakka til að hitta þig/ykkur á sunnudag. Vonandi verður veðrið betra en í dag.... þvílíkur viðbjóður!
Kveðja, Inga Björk

3:17 e.h.  
Blogger Karen said...

Er svo gaman að vera fiðring og tilhlökkun í maganum!!
Ég væri sko alveg til í að það færi að vora hérna! En það er allt á KAF í snjó :(

1:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters