föstudagur, janúar 12, 2007

Kleina

Þegar ég var ung stelpa þá átti ég æðislegan frænda sem tók mig í kleinu. Það var gaman...

Í gær bakaði ég kleinur og það var þessi líka æðislega fína uppskrift frá mömmu sem var að gera góða hluti á heimilinu fram eftir öllu kvöldi í áti.... set hana hér inn fyrir þá sem hafa áhuga og vilja vera vissir um að þetta takist. Ég var með helluna á hálfum hita miðað við hæsta mögulega og það var fínt svoleiðis (hita feitina fyrst upp á hæsta styrk og svo prufa bara með eina kleinu í einu til þess að of mikið verði ekki svart að utan en kannski hrátt að innan)

Kleinur:
1 kg. hveiti
2 msk. lyftiduft ( tæplega )
1 ¼ tsk. hjartasalt
75 g. smjörlíki
----
250 g. sykur
2 egg
3 ½ dl. súrmjólk
1 ½ dl. mjólk
1 tsk. kardimommudropar
----

Aðferð:

1. Takið 1 – 2 dl. af hveitinu og geymið.
2. Setjið hveiti, lyftiduft og hjartasalt í skál eða fat og blandið vel saman.
3. Skerið smjörlíkið og myljið það saman við.
4. Bætið sykri út í og blandið vel saman við.
5. Búið til holu í deigið og setjið egg, súrmjólk, mjólk og kardimommudropa út í og hrærið.
6. Hnoðið deigið.
7. Fletjið deigið út, búið til kleinur og steikið þær.

Gangi ykkur vel

Nína skvísa er dottin í blöðin! Já farin að kaupa og lesa Bravó, það er nú margt spennandi í því fyrir allan aldursflokk.

11 Comments:

Blogger Karen said...

Umm ég elskaði það þegar amma bakaði kleinur! Og ekki finnst honum systursyni mínum leiðinlegt þegar ég tek hann í kleinu :)
Ohhh Nína komin í Bravó, á hennar aldri keypti ég alltaf Bravó og klippti út alla myndir af New Kids On The Block og veggfóðraði herbergið mitt!! Ætli dýramyndirnar hennar fari ekki að víkja fyrir myndum af Justin Timberlake eða einhverjum öðrum sykursætum söngvurum??

3:28 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já einmitt, það væri ekki ólíklegt að nú færu dýramyndirnar að víkja fyrir einhverjum sykursætum söngvörum, hvort sem er konum eða körlum. Bíðum spennt...

Já það er gaman að vera tekin í kleinu...

Góða helgi
ykkar Helga

6:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta líst mér vel á. Flott að fá uppskriftina. Nú skellir maður sér í kleinubakstur.

Kveðja,
Haddi

1:49 f.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Nína er nú að nálgast það að verða unglingur, þannig að áhugamálin breytast kanski aðeins :)

Fínt að kleinurnar heppnuðust vel hjá þér Helga mín, frystir þú ekki eitthvað af þeim þannig að hægt verði að taka þær út í febrúar?

Góða helgi sömuleiðis;)

10:44 f.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Hahaha... ég man eftir því þegar ég var Bravo-sjúklingur... skildi ekki rassgat en kennaratyggjóklessuummerkin eftir opnurnar voru efni í nokkrar málningarumferðir...

12:18 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ha, ha, ég vissi ekki einu sinni að Bravoblöðin væru ennþá til....maður átti nú nokkur svoleiðis....;o)

Þessi kleinuuppskrift verður pottþétt prófuð á þessu heimili;o)

3:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já það er nú óskandi að sem flestir taki sig til og baki kleinur, tala nú ekki um hjá ykkur Haddi. Það verður líka spennandi að vita hvort Nína verði áfram svona spennt yfir Bravó, þetta eru yndisleg ár....

kveðja Helga

11:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ og takk kærlega fyrir síðast. Kleinurnar voru alveg æðislegar og bara allt mmmmmmmmm
Svo sjáumst við bara aftur á miðvikudag, á ég ekki að koma? Fæ kannski kaffi og Donauwelle ;) Eða kannski frekar Brötchen.

Bravo er skemmtilegt,ég átti alveg helling og gat loksins lesið þau eftir að hafa verið hér :) Ætli það séu ekki enn nokkur uppi á lofti hjá mö og pa.....Man hvað mér fannst krakkarnir sem voru að leita að pennavini ljótir.....

Sjáumst. IBH

6:55 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Inga við höfum bara brötchen, getum ekki verið endalaust í sætusukki.... hlakka til að sjá þig

kveðja Helga

9:16 e.h.  
Blogger Silja said...

Góður þessi Helga! Amma mín var jú fræg fyrir laugardagskleinurnar sínar en gat/vildi ekki gefa neinum uppskrift. Verð að prufa þessa. Er mér óhætt að hafa svona mikla feiti á gashellunni? Kveikti nánast í einu sinni og var bara að steikja kjöt. Hvaða feiti notaru til að steikja?

4:29 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég nota bara einhverja feiti, það er held ég alveg saman og ég trúi núekki öðru en að það sé í lagi með feiti á gashellu en ég veit lítið um það... gangi þér Vel Silja


kv.
Helga

12:03 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters