Allir benda á næsta
Það er sérstakt sem ég upplifi þessa dagana. Einskonar stjórnmálafræðileg "ekki ég" hugsjón. Ég á þá einkum við í sambandi við ráðuneyti og aðrar opinberar skrifstofur sem eru ekki háðar þjónustulund. Það er nú vitað mál að samskipti í eigin persónu eru áhrifaríkust en þegar maður býr ekki á Íslandi eða jafnvel utan stór Reykjavíkursvæðisins þá hefur maður ekki alltaf tök á því að koma og bíða eftir þjónustu og koma aftur til að ýta á eftir hlutunum. Símtöl dragast á langinn og það sem er áberandi er að enginn tekur að sér það sem maður óskar eftir, heldur sendast gögn fram og til baka og enginn þykist vera með ákvörðunarvald. Hvar endar þetta eiginlega.....
Ekki mundi ég vilja vera útlendingur á Íslandi í dag og þurfa að ganga svona rosalega á eftir hlutunum. Það er sjálfsagt mjög mikil bót í máli að ég komi frá Akranesi þar sem maður þekkir mann og yfirleitt einhver sem maður hefur haft persónuleg samskipti getur verið mér innan handar en kommon, það getur ekki verið að þess þurfi.
Ég hafði nú heyrt af vandkvæðum í sambandi við pappíra og réttindi og flutning og annað, ég svo saklaus sem ég nú er, hélt að það væri einsdæmi en nei kæru lesendur, þetta er greinilega STEFNA hjá opinberum stofnunum!!!! Með undantekningunni Karen....


6 Comments:
Já er þetta ekki merkilegt, það virðist vera erfitt að finna réttu persónuna til að afgreiða fólk með erindi sín. Það er alltaf bent á einhvern annan!!!
Mér heyrist á samnemendum mínum í skólanum að svona virðist þetta líka vera hér í Danmörku, en það bætir ekki ástandið í ráðuneytum heima.
Já Karen er örugglega undantekning frá þessu :), eða þessari lélegu þjónustu.
Bestu kveðjur og vonandi fer þetta að ganga.
Gaman að heyra af litla dugnaðarforkinum:) Ekki eins gaman að þið séuð að lenda í íslenska burókratíinu, þetta er nú ekki heilbrigt í svona litlu landi að það sé ekki hægt að hafa hlutina einfalda - enginn veit neitt, eða þá allt og hinir eru heim... o.s.frv. Brrr, ég verð alveg brjáluð þegar ég hugsa um allan tímann sem ég er búin að eyða í þessa vitleysu síðan við fluttum heim!
Hef einmitt reynt að senda pósta á nokkrar af þessum stofnunum. Það vantar ekki að manni er þakkað sérdeilis vel fyrir að senda fyrirspurn...en að þeim detti í hug að svara fyrirspurninni það er allt annað mál!!!
Þetta skítlega eðli þessara stofnanna er með eindæmum!!! Þetta er bara svona með allt hérna! Við erum ekki nema 300.000 og við þurfum að hafa rúmlega 60 manns inná þingi til þess að rífast daglega!!! Í Danmörku eru um 5 milljónir íbúa og þar eru þingmenn 130... Í ofanálag erum við að kjósa flokka í kosningum og eftir hentisemi einhverja sem stjórna uppsetningum á flokkunum... Þetta er svo ótrúlega mikil heimska að það hálfa væri nóg!!! Svo að hafa einn mánuð þar sem allir skila inn skattaskýrslunum á meðan það væri þægilegra fyrir alla (og meira að segja þessa bjúrókrata hjá skattinum) að maður myndi bara skila skattaskýrslunni þegar maður á afmæli... maður gleymir því ekki svo glatt og það minnkar álagið á öllum.
Nei... hér kjósum við að vera óldskúl... ekki bara í hugsunarhætti hins opinbera... líka í lífinu!
Það er einmitt alveg eitt það versta að lenda í svona skriffinnsku drasli. Skattstjórinn held ég að sé allra vestur í þessum málum.
Ef þig vantar aðstoð í þessu stofnanna braski þá lætur þú mig bara vita ;)
Úff, ekki öfunda ég ykkur af þessu skriffinsku brjálæði....ekki það skemmtilegasta sem maður gerir...
...en gangi ykkur nú samt vel!
Skrifa ummæli
<< Home