Höfnin
Jæja þá er þetta amk komið í höfn.... Alex er kominn með viðurkennd réttindin sín sem meistari og iðnfræðingur, það munar nú um það. Þá heldur krampinn áfram í þessum stofnanabraski okkar. Enginn endir í sýn þar....
En nú fer allt að rúlla,
það voru 6 konur sem höfðu samband vegna pössunarinnar, það ætti líka að vera komið í höfn.
Óli ætlar að redda bílstól og matarstól, það líka komið.....
Þannig að það fer heldur betur að styttast to do listinn hjá mér sem er bara GOTT því það er ekki nema rúm vika í áætlaðan flugtíma...
MAmma og Þórður stefna á að leggja af stað á miðvikudag, það verður því haldið hátíðlegt afmæli hennar múttu hér með okkur dætrum hennar og barnabörnum.... Alex kemur ekki aftur fyrr en eftir næstu helgi, gaman gaman....
Best að skella í einn kassa,
lag dagsins er litlir kassar á lækjabakka...... sælla minninga skátamótsins á Hólahólum....


6 Comments:
Frábært, bara allt að smella hjá ykkur :)
Ég væri sko til í að vera með í afmælisfögnuði verður eflaust mikið fjör hjá ykkur.
Hæ hæ og takk fyrir í gær.
Við hlótum að redda þessum sængum, annað hvort ég skrepp til þín eða þú hingað og lítur kannski í tívolí ;)
Heyrumst, Inga
Vóó...það er bara allt í einu komið að þessu. Frábært hvað það gengur vel hjá ykkur.
Góða skemmtun með Þóru. Siggu og Þórði;O)
Ég reikna með banastuði hér í afmælinu!!! Inga ég skil ekki hvernig við gátum klikkað á þessu, var svo svekkt, sérstaklega búin að taka þetta með mér og allt. Hvað segiru er tívolí, kannski maður komi bara með ferðalangana í smá skoðun í Recklinghausen...
Takk HEiðrún mín, þetta verður örugglega allt og fljótt að líða enda hið skemmtilegasta fólk...
kv.Helga
Til hamingju Alex og til hamingju með bóndann Helga. Það er fínt að búið er að ganga frá þessu :)
Hlökkum til að hitta ykkur annað kvöld.
Við stefnum á að leggja af stað fljótlega eftir skólann. Það gæti þá verið á milli klukkan 14:00 og 15:00.
Ég skil ekki heldur hvernig við gátum gleymt þessu, allar!
Hér er risa tívolí frá 23.3, er alltaf á hverju ári á þessum tíma.
Ég get líka alveg skroppið til þín í kaffi. Ef í hart fer sendir þú þær bara í pósti ;) Ekkert svo dýrt, ég skal borga undir.
Heyrumst
Inga
Skrifa ummæli
<< Home