miðvikudagur, mars 28, 2007

Bless bless, hæ hæ...

Jæja þetta er nú alveg búið að vera ótrúlegt þessa síðustu daga. Það er sko ekki verið að auðvelda fyrir manni flutninginn. Fólk búið að koma með kort og gjafir til okkar og koma til að knúsa okku. Frábært alveg hreint, veit ekki hve oft ég er alveg búin að vera við það að gjörsamlega grenja mig blauta! Verst þykir mér þó aðskilnaðurinn við vinkonu mína Marinu...

Nína var voða dugleg í skólanum, allir voru sorgmæddir að kveðja hana og hún líka en svona stundir eru svo mikilvægar fyrir mann. Núna bíðum við eftir Alex, allt klárt og bara eftir að brjóta saman þvottinn sem ég setti í vélina í morgun.

Vigtin, jájá allt í lagi með það er það ekki.... bara tæp tuttugu í yfirvigt, en ég trúi á heppnina í mínu lífi og þar við situr það!

Leggjum í hann eftir nokkrar mínútur, ég hlakka til að sjá ykkur, verið nú dugleg að hafa samband og hitta okkur... sími 4311547

´bæbæ

5 Comments:

Blogger Silja said...

Góða ferð og gangi ykkur vel að koma ykkur fyrir. Mikið til í því að sorglegu kveðjustundirnar séu mikilvægar. Þetta verður ekki auðvelt fyrir Nínu, en hún á góða að.
Takk fyrir heimboðið, verð að fresta því um nokkra mánuði ;) Að minnsta kosti fram að jólum.

4:07 e.h.  
Blogger Systa said...

Vertu velkomin heim Helga mín, við hér á Íslandi erum svo spennt að fá ykkur aftur, veit ekki hvort ég hitti þig nokkuð fyrr en í pottinum þann 4. þá kem ég með freyðivín og við skálum :)
kv Systa

5:12 e.h.  
Blogger Bippi said...

Góða ferð elsku Helga, Nína og Balthasar!

Já, það er leiðinlegt að kveðja en það tekur við nýr kafli sem verður örugglega álíka skemmtilegur!

Vonandi gengur allt vel og þú lofar að vera dugleg að blogga frá Íslandinu;o)

5:33 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Góða ferð enn og aftur.
Blómið er komið í stofuna, Seydi vill ekki blóm á skrifstofuna ;) Breytist kannski þegar ég fer að vinna þar :)

Hafið það gott og við sjáumst.
So long and goodbye
IBH

6:57 e.h.  
Blogger Karen said...

Góða ferð elskurnar og sjáumst eftir smá :)

9:57 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters