mánudagur, mars 26, 2007

Smá viðbót

Ég er nú búin að vera svo utan við mig og vona að það komist hér til skila aðeins seint en samt! Anna Björk til lukku með daginn þann 16. og Daniel eiginmaður hennar, til hamingju með daginn þann 21. mars. Aldeilis margir sem eiga afmæli svona á vordögunum, enda alveg æðislegt að eiga afmæli, ég hlakka til að eiga afmæli í maí á Íslandi.

Alex kemur heim í dag, svaka munur að fá aðeins að knúsa sinn ektamann áður en maður heldur svo í mánaðareinmanaleika frá honum.

Í gær komu Þórunn og dætur með þessar líka frábæru kveðjugjafir fyrir börnin á heimilinu, takk fyrir það! Við skelltum okkur ásamt fleiri þúsund gestum niður í bæ á vorhátíð, fengum okkur ís og nutum sólargeislanna.

Balthasar er sofandi núna, sefur alveg eins og herforingi enda enn slappur, á eftir að mæla hitann í dag, það er bara vonandi að íslenska fjallaloftið lagi allt.

Vorknús....

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gangi ykkur vel í flutningunum Helga mín! Og litli kúturinn hressist um leið og hann andar Íslandi að sér. Það er svo sannarlega komið vor og ég held að þetta verði bara það besta sumar!

4:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ, spennan að ná hámarki og þið að fara :(
Sjáumst á morgun
Inga

5:55 e.h.  
Blogger Bippi said...

úps....þetta er bara að skella á....ekki á morgun....heldur hinn!

Góða ferð elskurnar!

7:00 e.h.  
Blogger Gunnur said...

Gangi ykkur vel og góða ferð Helga mín! Þú leyfir okkur að fylgjast með nýju lífi á Íslandi, er það ekki!

Sólarkveðjur frá Lystrup :-)

9:36 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Góða ferð, við kíkjum síðan á ykkur í morgunkaffi á næstu dögum.

Kveðja
Christel og co

10:11 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir sængurnar, rakvélina, bókina og bara ALLT.
Góða ferð aftur.
Sólarkveðja, Inga

2:38 e.h.  
Blogger Karen said...

Á morgun.... :)

1:05 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters