miðvikudagur, mars 21, 2007

Vingjarnlegheit

Það furðar mig nánast á hverjum degi þegar fólk er pirrað eða ókurteist í afgreiðslu eða þjónustustarfi hvers konar. Ég læt þetta fara í taugarnar á mér því það gerir fólki sjálfu auðveldar fyrir að vera með jákvætt hugarfar og vingjarnlega framkomu. Ég kýs að velja að vera frekar jákvæð og kurteis í framkomu, svoleiðis var ég alin upp. Auðvitað er maður misvel upplagður en það er samt ekkert sem á að koma í veg fyrir að vera kurteis við aðra aðila, þótt maður sé illa sofin, með áhyggjur og líður ekki vel.

Í gær fór ég með börnin mín á sjúkrahús í Munster þar sem Nína þurfti að fara í heilalínurit en það er árlegur viðburður sem fylgir því að hún var með flogaveikina. Konan í skráningunni náði ekki að kreista fram vingjarnlegan svip þrátt fyrir að Nína væri brosandi og glöð, Balthasar líka en hann brosir nú til allra og ég eins kurteis og ég mögulega gat við svona annars dónalega frú. Ég vorkenni henni......

Þegar við vorum komin heim og Nína búin að læra heimaverkefnin þrátt fyrir að hafa ekki farið í skólan þá fór ég í göngutúr með vagninn. Á leið minni hitti ég mann á besta aldri sem hafði verið að æla við tré á göngustíg, vel klæddur og á hjóli, annað hvort verið búinn að fá sér heldur mikið neðan í því eða bara veikur, mér er alveg sama hvort er, ég spurði hann hvort ég gæti aðstoðað hann eitthvað, kannski gefið honum bréf til að þurrka sér í framan.... já sagði hann, frekar hissa á að ég skuli tala við hann þar sem ég átti bara notað bréf tók hann því fegins hendi....

Svo hitti ég konu sem var á hjóli hér nokkrum húsum frá okkur og var stopp og með lokuð augun, ég spurði hvort allt væri í lagi og hún sagðst bara aðeins þurfa að hvíla sig.

En fólk labbar annars bara framhjá og lætur sem það sjái ekkert.... svona fer líka í taugarnar á mér. Ef ég værieinhversstaðar, veik eða slösuð þá mundi ég vilja aðstoð!!! þess vegna tel ég það í mínum verkahring að athuga með fólk á sama hátt og ég mundi vilja láta huga að mér.

Í kvöld koma mamma og Þórður, á mogun Þóra... spennandi tímar framundan

8 Comments:

Blogger Karen said...

Það er alveg merkilegt hvað margir eru tilbúnir að ganga framhjá þeim sem virkilega þurfa aðstoð.
Það gerðist nú í Breiðholtinu um daginn að slasaður maður fékk engan til að aðstoða sig þrátt fyrir að reyna ítrekað að stöðva bíla. Sorglegt...en gott hjá þér að rétta fram hjálparhönd!!
Bið að heilsa :)

9:31 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Fólk er líka svo hrætt held ég, auðvitað ekki alltaf að ástæðulausu....
kv. Helga

11:17 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ég er hrædd um að þú eigir eftir að fá menningarsjokk þegar þú flytur til landsins, við Íslendingar erum ekki mjög vingjarnleg eða kurteis svona almennt séð :)
Hlakka til að hitta þig, styttist í það, árshátíðin bara eftir 2 vikur!!!
kv Systa

12:00 e.h.  
Blogger Bippi said...

Ég er svo sammála tér í sambandi vid tetta Helga!

Ég get ekki látid tat vera ad skipta mér af tegar ad ég held ad eitthvad sé ad hjá fólki. Ég myndi vilja ad mér eda mínum væri hjálpad ef ad vid værum í einhverri neyd.

Ég stend líka alltaf upp í strætó fyrir eldra fólki tó svo ad ég toli ekki ad standa;o)

Tví midur sé ég mjög mikinn mun á dönsku afgreidslufólki og íslensku. Manni lídur allavega tannig hérna ad fólki finnist gaman í vinnunni sinni ólíkt heima á Íslandi. Oft á tídum. Madur á ekki ad alhæfa.

Jæja, núna er ég búin ad blogga í kommentakerfid titt;o)

Góda skemmtun um helgina!!!

1:24 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ. Það mættu margir taka gleði og vingjarnlegheit þín og þinn til fyrirmyndar :)
Eigðu góðar stundir með fjölskyldunni.
Við heyrumst í sambandi við sængurnar.OK
Inga

2:56 e.h.  
Blogger Silja said...

Elsku Helga mín. Ég veit svo vel hvað þú meinar, en því miður höfum við öll einhvern tíman gerst sök um að ganga fram hjá. Reyni að gera sem minnst af því.

Þetta með vingjarnlegheitin er að margra mati einsdæmi fyrir Evrópu (ísland meðtalið). Stundum á ég það til að pirrast við afgreiðslufólk og fatta svo að enginn hagar sér svona hér! Fólk hækkar aldrei röddina eða verður dónalegt við neinn, hversu illa þeim er við það! Við Þýski vinur minn köllum það að "go totally european" við einhvern ef við missum okkur...

5:07 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Þú ert svo hugulsöm Helga mín. En ég er alveg sammála þér. Ég reyni að rétta alltaf fram hjálparhönd þá veit maður líka hvort hennar er þörf eða ekki. Fólk afþakkar hjálpina ef þau vantar hana ekki.

En svakalega getur fólk í þjónustustörfum verið með fúlt viðmót. Þetta er alveg ótrúlegt! Af hverju ekki bara að fara í eitthvað annað!? Eins og t.d. rannsóknarvinnu eða eitthvað :)

Ég hlakka ógeðslega til að sjá ykkur á morgun Helga... vó.. tíminn líður!
B.kv. Þóra

9:21 e.h.  
Blogger Karen said...

Til hamingju með mömmu :)
Bið æðislega að heilsa afmælisbarninu og öllum hinum!

2:48 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters