Afmæli, veikindi og kveðja
Til hamingju með afmælið mamma, svona smá eftirá hér á blogginu en við héldum saman upp á afmælið hér á Wertchenstrasse og höfðum gaman af því að pakka í kassa svona inn ámilli og þrífa og ganga frá.
Verst er með þessi veikindi, maður er svo hjálparlaus. Mamma fékk svona illa í bakið á miðvikudeginum sem þau komu, hún fékk bara eins og rafsting í sig í skólanum um morguninn og það hefur ekki bætt ástandið að sitja í 10 tíma í bíl þann daginn. Þau óku alla leiðina, fóru ekkert með ferju eða neitt. Á heimleiðinni ætla þau að fara með ferjunni og njóta þess að stoppa á skipinu. Ég fór svo með mömmu til læknis á fimmtudeginum og hann hnykkti bakinu þannig að hún varð mun betri en enn ekki góð.
Balthasar er líka veikur, hann er með magakveisu, upp og niður. Í gær var mjög takmarkað sem hann borðaði, en hann drakk brjóstamjólk,,,, brjóstið er best og svo í morgun borðaði hann og það hefur allt farið ágætlega í hann í dag, reyndar bara míní skmmtar en það er nú sama. Bara niðurgangurinn og hitinn eru enn til staðar. Vonum að allt sé búið á morgun. Alltaf að halda í vonina....
Nína svaka skvís hélt fyrirlestur í skólanum á föstudaginn um Ísland, var búin að búa til plakat með upplýsingum sem hún hafði safnað að sér og svo fundið bara smá upp líka.... En hún bakaði líka skúffuköku á fimmtudeginum og skar hana í 30 bita og skreytti hvern bita með tveimur smartísum og einni hlaupsnuddu, meira pláss var ekki á hverjum bita. Þetta var svo flott hjá henni, kaka með smjörkremi og skreytt, bara eins og úr bakaíi. Hún var voða ánægð með árangurinn þegar hún kom heim úr skólanum og sagði að allir hefðu verið mjög áhugasamir og spurt mikið og að kakan hefði hitt í mark. En nú byrja samnemendur Nínu og hún sjálf líka að verða sorgmædd útaf því að þurfa að kveðja. Mamman jákvæðnin ein og snýr öllu upp í hálfgerðan p0llýönnuleik, sem mér finnst bara ansi góð lífsleikni verð ég að segja. Ég er samt sjálf orðin ansi þreytt og hlakka bara til að ljúka þessum kafla!
Brottför frá Wertchenstrasse er á miðvikudag eftir skóla hjá Nínu, hún þarf að skila öllum skólabókunum á morgun og er alveg í mestu vandræðum hvernig hún eigi þá að gera heimaverkefnin!
Þóra, Þórður og mamma, takk fyrir heimsóknina og hjálpina við pökkun, þrif, tiltekt og pössun, þið eruð ómetanleg....


4 Comments:
Eruð þið bara að koma á fimmtudaginn? Glæsilegt:) Nína er ekkert smá myndarleg, greinilega vel heppnuð kveðjustund hjá henni í skólanum.
Ég skil það vel að þú sért orðin þreytt. Svona flutningar geta verið virkilega lýjandi!
Vonandi gengur allt vel. Knús í kotið!!
Takk fyrir stelpur já þetta er ótrúlegt hvað tíminn er búinn að vera fljótur að líða.
kv.Helga
Tekur á en hugsaðu þér hvað verður gott að komast í rokið og rigninguna á Íslandi;)
Góða ferð heim.
Kv. Rannveig
Skrifa ummæli
<< Home