miðvikudagur, ágúst 15, 2007

Sperrugill

Þá eru sperrurnar komnar allar saman og síðasta steypan búin að renna í mótin. Alveg stórglæsilegt hvað þetta er fljótt að gerast og allt að renna saman hjá okkur Alex. Hann er búin að standa sig eins og hetja eins og Óli bróðir, algjör draumur í dós og Atli sem er búin að fórna sér líka fyrir okkur eins og Óli og svo síðast en ekki síst Þórður sem hefur reynst okkur mjög vel. Í gær voru nokkrir góðkunningjar samankomnir til að halda upp á þennan merka áfanga hjá okkur, ég bara minni á myndasíðuna okkar á www.familieeck.blogspot.com nú verður andað í nokkra daga áður en allar spýturnar verða rifnar niður til að setja ofaná þakið.

Best að fara á kvöldvakt
knús og kram
Helga Húseigandi

4 Comments:

Blogger Karen said...

Innilega til hamingju með þennan áfanga elskurnar. Alveg frábært hvað þetta er búið að ganga hratt og vel :)

11:06 e.h.  
Blogger Sigga said...

Vá!!húsið bara rýkur upp.
Nú er þetta farið að líta út eins og hús.
Með þessu áframhaldi veriðið þið bara flutt inn fyrir jól!

2:50 f.h.  
Blogger Karen said...

Myndirnar eru líka frábærar og Óli lýsti fyrir mér "athöfninni"
Ótrúlega spennó!!

11:53 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já þakka ykkur fyrir, það er nú líka ekkert smá munur að hafa svona ofur vinnumenn í vinnu hjá sér. Athöfnin var þokkalega spennandi... hihi...

kveðja Helga

11:58 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters