laugardagur, september 01, 2007

Áfram Akranes

Lífið heldur áfram sinn vanagang. Nína er byrjuð í skólanum, minn skóli byrjar í næstu viku og allir voða duglegir á heimilinu. Alex er mjög upptekinn í vinnunni og hefur lítið unnið í húsinu í ca viku en nú fer allt að rúlla að nýju. Strákarnir eru að vinna núna, nema Atli sem er í hálfgerðu veikindafríi. Það á svo að bruna í Dæli í smá helgarferð með hjúkkubrunch vinkonunum mínum, en þetta er árleg ferð sem hópurinn fer í með fjölskyldum sínum. Gaman gaman....

2 Comments:

Blogger Karen said...

Takk fyrir síðast og fyrir mig!!
Hvernig leggst námið í þig?
Líst þér ekki vel á?
Flottar myndirnar úr ferðinni :)

10:45 f.h.  
Blogger Silja said...

Ok vinkona. Það er oktober og þú enn ekki að blogga... Ekki segja mér að það sé svona rosalega gaman á klakanum?!
Amma skilaði kveðju frá þér, takk fyrir það.Gaman að vita af góðu fólki hjá henni.

6:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters