mánudagur, október 29, 2007

Hvaða bloggleti er þetta

Maður má þakka fyrir að vinkonur kommenti þrátt fyrir ómælda leti í mér. Takk stelpur, ég treysti á ykkur.

En Silja það er rétt hjá þér, það er sko nóg að gera hjá manni hér á Akranesi. Ég tek líka virkan þátt í því sem er að gerast í kringum mig þannig að ég er í hinum ýmsu vinaklúbbum sem bæði hafa lengi verið starfræktir og svo sem nýbúið er að koma á stofn. Svo fór ég nú á bæjarstjórnarfundi sl. bara sem áhreyrnarfulltrúi svo að það sé á hreinu. Ég er enn ekki búin að skrifa mig í neinn flokk en það er örugglega margt vitlausara en að festa sig í flokk á Íslandi þar sem smáborgarapólitík er enn stór hluti af þeirri stjórnmálastefnu sem ríkir. Þannig að maður þekkir mann sem þekkir mann og getur reddað hlutunum. Ekki orð um það meir. Nema að mér finnst auðvitað um að gera að nota slík tengsl.

En á Akranesi er mikil uppsveifla, það kom fram á bæjarstjórnarfundi að 40-50 manns hafa flutt til Akraness síðan í júní, á hverjum mánuði. Fjölgun bæjarbúa er mest á landinu hér að frátöldum Reykjanesbæ en þangað fluttu 670 nemendur á einu bretti í sept. Nýtt tónlistaskólahúsnæði var tekið í notkun fyrir stuttu. Hingað er komin krónan og bónus og verið er að byggja nýjan leikskóla og fleiri hundruð íbúðir eru í byggingu á Skaganum. Ekki mundi það furða mig ef aukið væri við stöðugildum hjúkrunarfræðinga á byggðarsvæðinu þar sem mikið álag er og skortur að mati hjúkrunarfræðinga í vinnu á sjúkrahúsinu svo ekki sé annað sagt.

En það er einmitt vandi að fá aukið við stöðugildum, eins fyrir Kennara, það eru mörk fyrir það hve mörg börn mega vera í bekk en þegar nánast annað hvert barn á orðið við vandamál að stríða er auðvitað spursmál hve mikið á að leggja á bæði kennara og samnemendur. Eins með hjúkrunarfræðinga, sjúklingum er ekki neitaður aðgangur að heilbrigðisstofnunum, nei komdu í næstu viku, þá er rólegra og þá getum við betur sinnt þér. Þannig að kannski er fólk ekki að fá þá þjónustu innan heilbrigðiskerfisins sem við viljum veita. Hitamál fyrir okkur hjúkrunarfræðinga og eins og undanfarið hefur nokkuð borið á umræðum í morgunblaðinu um það hve mikið vinna hjúkrunarfræðinga hefur breyst, það er þá helst, hvað hefur mikið bæst við störf þeirra. Alltaf verið að bæta við...

Jæja ég ætlaði mér nú ekki að hafa þetta hápólítískt hér en langar að nota tækifærið og óska Kiddu og Ínu innilega til hamingju með stóra strákinn sem fæddist á laugardaginn og var mjög stór, 53 cm og rúmir 15 merkur. Til lukku elskurnar, fæðingin var líka mjög góð og hægt er að nálgast myndir og nánari upplýsingar á www.rokkfamily.net einnig langar mig að óska Gunnari Sturlu og Chrisel vinum mínum alls hins besta fyrir flutningana á Íslandi. Vonandi fá þau óskahúsnæði og góðar vinnur. Hlakka til að fá ykkur,
læt þetta duga í bili...
kíkið líka á fjölskyldumyndirnar okkar á www.familieeck.blogspot.com
kveðja Helga

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gaman að frá fréttir af þér Helga mín og farðu nú að drífa þig í bæjarpólitíkina! Fær maður kaffi í nýja húsinu þínu um jólin kannski?

Haustkveðjur,

Svana x

3:32 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir kveðjuna Helga mín, húsnæðismál og vinnumál eru að koma á hreint hjá okkur.

Hlakka til að kíkja á ykkur í heimsókn.

Kveðja
Christel

5:48 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Svana mín, alltaf heitt á könnunni, en lítið annað til að bjóða upp á nema að taka verkfæri í hönd og hjálpa til. Flutningar verða í fyrsta lagi með hækkandi sólu í vor!

Við reynum nú að hafa saumaklúbbshitting um jólin þegar þú ert á landinu Svana mín.

Þetta á allt eftir að fara vel Christel en þetta er mjög erfiður tími á meðan allt er óvíst.

kveðja Helga

1:38 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að lesa fréttir af ykkur! Ég sé þig sko alveg fyrir mér í bæjarpólitíkinni Helga mín.

Frábært að það sé svona mikill uppgangur á Skaganum. Ég get ekki beðið eftir að skoða nýja tónlistarskólann.

En ég verð að segja að Krónan og subway og hvað þetta heitir allt saman trekkir ekki að fyrir minn smekk. Það er einmitt gamla græna innréttingin og fólkið í Einarsbúð sem að gerir það nú frekar:S

Ég er alveg ferlega í haldssöm og er t.d. ekkert hrifin af því að pósthúsið sé að fara að flytja. Ég vil bara hafa allt á sínum stað;o)

Ég fer líka alltaf á sama klósettið í skólanum sem segir kannski meira um mig en nokkuð annað.....

*knús á liðið*
Heiðrún

8:29 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Það verður gaman fyrir þig að skoða nýja tónlistarhúsið fyrir þig íhaldssama kona! En eitt er að vera íhaldssömu og annað að vera hyggin með peningana sína. Hann Einar er því miður ekki með lægsta vöruverðið og versla ég því megnið í öðrum verslunum þar sem ég lít vel á hvað hlutir kosta eftir að ég flutti aftur heim. En ég versla oft kjötvörur og fisk hjá honum, þar stendur hann sig vel í verði og gæðum.

kveðja Helga

11:43 e.h.  
Blogger Karen said...

Enn hvað það er gaman að sjá blogg frá þér :)
Ég held að íbúar Akraness yrðu afskaplega heppnir ef að þú færir út í bæjarpólitíkina Helga mín. Með eins heilbrigðar og jákvæðar stefnur og skoðanir þú ert með á lífinu.
Sjáumst vonandi bráðlega og ég bið kærlega að heilsa heim.

2:56 e.h.  
Blogger Silja said...

Takk fyrir kveðjuna Helga mín. Endilega drífðu þig í pólitík og reddaðu málunum, væri gaman að fylgjast með því.

9:14 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

HÆ Helga mín.
Long time no "seen".
Sá á hinni síðunni að þú ert á leiðinni til D. í des.
Hvar verðiði? Þú veist að þú ert alltaf velkomin til mín í kaffi.
Húsið ykkar er að verða rosa flott, hvenær á að flytja inn?

Góðar stundir og njótið tímans hér í D.

Kveðja, IBH

11:00 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters