fimmtudagur, febrúar 05, 2004

Komið sæl, kæru lesendur. Já ég var nokkuð ánægð með daginn í dag, þessi vika er búin að vera mjög fljót að líða sem er gott merki finnst mér. Við erum búnar að vera duglegar að mæta í sundlaugina við mæðgurnar. Fórum í gær og aftur í dag, syntum mikið í gær og vorum mjög sportlegar er ekki í dag, maður getur ekki alltaf verið sportlegur, eða er það nokkuð?? Já ég hafði áhyggjur af Nínu í morgun því það var frí í skólanum og ég kom ekki heim fyrr en klukkan ellefu en þá var hún hjá vinkonu sinni að leika. Hún er svaka dugleg að redda sér á morgnana, alveg svaka ,,, ég er mjög stolt af henni og þykir gott að hún geri þetta, ég meina stundum er hún bara að leika sér í playmo þar til verkjarinn í heimilissímanum hringir en þá þarf hún að leggja af stað og gleymir þá að tannbursta eða eitthvað en það eru nú bara smámunir. Við viljum jú ekki vera of smámunasöm, þótt ég sé frekar smámunasöm og ofurnákvæm á stundum. En maður getur jú bara verið stoltur af því að eiga svona duglega stelpu.

Já nóg um það en í dag þá fór hún á bókasafnið að sækja sér bækur en það er eitt af því mikilvægasta sem hún gerir..... já nú á að læra allt um hesta svo maður geti farið að læra á hestbak (eða hvernig orðar maður þetta) amk langar hana að læra á hest.... Hver veit nema hún bara fari á reiðnámskeið í Coesfeld.... Já svo eftir að ég var búin á vinnufundi fórum við til vinkonu minnar og í göngutúr með hundinn hennar. EFtir það fórum við með manninum vinkonu minnar og vinkonunni í sund. Toppuðum allt svo með því að fá okkur take away mat og borða saman hér heima hjá okkur. Svona á þetta að vera, ég sver það , engin almennileg snerting við sófann í dag,,, snökt, snökt en ég ætla að fara beint upp í rúm í dag án millilendingar á sófanum. Já bara harkan sex í dag.

Nú og svo er bara að fara að pakka fyrir Hamborg, það á eftir að vera gaman vonandi, man nú ekki hvaða hljómsveit spilar fyrir dansi, aldrei að vita nema maður taki snúning. Það er nú í blóðinu hjá mér, mamma er að fara að taka þátt í danskeppni línudansara í Reykjavík um helgina, spennandi já mamma þú mannst að skrifa úrslitin hér á síðuna.

Bara þrjár vikur eftir í vinnunni,,,,,,, þar til næst ykkar....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters