hæ beibís,
Hún Þóra systir mín hringdi í gær, hvort við Nína vildum ekki koma með á PINK tónleika í Reykjavík í ágúst. Frábær hugmynd. Gaman að fara á tónleika, ég hef aldrei farið á tónleika á Íslandi. Ég er nú ekki búin að segja Nínu frá þessu en hún á eftir að verða rosalega ótrúlega glöð. Bara muna eftir eyrnatöppum. Já og bara röð af frægum rokk og popp hljómsveitum að koma til landsins, það ætti þá að vera nóg um að vera á Íslandi í sumar.
Sá það um daginn að þetta með húsið í útileigu hjúkkubrunchsins var einhver misskilningur. Vonandi reddast það að fá nýtt hús þar sem líka er hægt að tjálda. Ég geri nú ráð fyrir því að það sé eitthvað laust, svona bændagisting eða slíkt þar sem Íslendingar eru nú ekki mikið fyrir að plana langt fram í tímann. Þetta reddast, annars gistum við bara í laugardalnum... Segi svona.
Það var svaka spenna í gangi hjá mér í morgun. Átti að mæta á atvinnuleysisskrifstofuna og hélt að það yrði þriðja stigs yfirheyrsla en svo var þetta svo alsaklaust eins og mest getur verið. Vantaði eitthvað í pappírana sem (svo sagði konan sem afgreiddi mig) tryggir að ég fái bætur. Þannig að það var nú meinlaust. Nú bíð ég bara spennt eftir því hve mikinn aur ég fái. Peningar eru svo mikilvægir því miður, ég vildi að þeir skiptu engu máli en það er því miður ekki svoleiðis. Án þeirra getur maður ekki verið, en það er nú með svo margt. Maður tekur ekki eftir hvað átt hefur fyrr en eytt hefur!!!
Við Nína höfum það fínt getum við sagt á meðan Alex er í burtu. Auðvitað finnst mér skemmtilegra þegar hann er heima en tíminn stendur ekki í stað, guð sé lof. En Nína á erfitt með að einbeita sér að heimaverkefnunum þessa dagana, allir eru úti að leika og þá er erfitt að hugsa um skólanámið. Það skiptir jú engu máli, eða hvað. Hvernig getur maður komin börnum í skilning um að námið sé mikilvægt fyrir þau en ekki mann sjálfann.
Núna ætlum við Nína að fara aðeins að versla, einhverja bók fyrir skólann, mjólk og kíkja á bermudas buxur sem eru á tilboði í Aldi. okei beibs, bless bless og verið hress.
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
miðvikudagur, apríl 28, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home