þriðjudagur, ágúst 31, 2004

Allt í röð og reglu
OOHHH hvað það fer í taugarnar á mér að vera að leita að einhverju sem ég setti einhverntíma á góðan stað. Það er sem ég segi, allt í röð og reglu nema ég veit ekki alveg eftir hvaða reglu ég fer þegar ég er að raða. Stundum fer ég eftir einhverri viðurkenndri reglu eins og stafrófsröð en oft set ég líka hlutina frá mér á góðan stað, þar sem þeir eru ekki fyrir neinum, þar sem innbrjótsþjófar finna það ekki og þar með talin ég sjálf þegar ég loks fer að leita að hlutnum. En hann er á vísum stað, það er á hreinu. Nú, oft hef ég séð hlutinn fyrir stuttu, en man svo ekki hvar það var. Það er versta tilfellið.... Nú, (mér finnst svo fyndið að tala svona, eins og maður sé að útskýra eitthvað svakalegt) ég held þá bara áfram að leita og að lokum finn ég hlutinn, eða tapa öðru, það er vitinu....... Kveðja Helga leitari

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters