Við fórum í sund í gær, í Enschede í Hollandi. Það var svvoooo gaman, alveg við Þóra, Alex og ég skemmtum okkur ekki síður gaman en Nína. Öldugangur, þrýstingsrennibraut og heitir pottar, eitthvað sem ekki þekkist í þýskum almenningssundlaugum. Fyrir utan það var nóg af kelerísstöðum og tvær venjulegar rennibrautir. Við vorum í hálfan klukkutíma að keyra héðan í þennan sæta bæ og fórum í bæjarrölt, alveg svakalegur markaður og flottir grænmetis- og ávaxtastandar. Djúpsteikt heil fiskiflökin sem fólk sporðrennti eins og það væri ekki þekkt fyrir annað. ´Síld með hráum og margt margt fleira athyglisvert. Við keytpum nú ekki neitt nema appelsínur, epli og osta en það er alveg frábært að kaupa ost í Hollandi. Það er frábært að hafa það svona stutt á milli landa því maður hefur á tilfinningunni að maður sé í sumarfríi þegar maður kemur í annað land. Skrýtið hvað stundum þarf lítið til að gleðja mann.
Sunnudagskveðja frá Coesfeld
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
sunnudagur, ágúst 29, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home