Skólabyrjun
HHMMMM það er alltaf svo gaman þegar skólinn byrjar á haustin. Mér fannst það rosa gaman held ég sem krakki og unglingur og fullorðin. Svona fyrstu dagana amk. Nína gat ekki sofnað í gærkvöldi, örugglega fyrir spenningi og í morgun var hún búin að stilla vekjaraklukkuna sína klukkutíma fyrr en hún þarf að vakna, korter í sex..... Alex fór á fætur og inn í hennar herbergi til að slökkva á klukkunni því Nína vaknaði ekki þótt hún væri nánast ofan í eyranu á henni. (kannski hún þurfi svona vekjaraklukku eins og þú átt Þóra?). Svo hittust krakkarnir allir hér fyrir utan alls 8 stykki og löbbuðu fimm mínúturnar saman í skólann, kjaftandi og með spenning fyrir fyrsta deginum í fjórða bekk.
Ég var bara fegin að geta lagt mig svo aftur þegar hún var farin!! Já ég þarf líka að jafna mig eftir helgina. Við fórum í fimmtugsafmæli til hennar Waltraud og komum heim í gærkvöldi rétt fyrir átta. Það var gaman og við dönsuðum eins og við gerum nú nánast á hverri einustu samkomu sem við hjónin förum á. En það var eitt par sem dansaði svo framúrskarandi vel, alveg eins og þau (parið, fullorðið fólk), væri ein manneskja. Alveg fagmannslega og rosalega fannst mér gaman að horfa á þau dansa.
Jæja ég læt þetta nægja í bili og hlakka til að heyra nýjar sögur frá hjúkkunum eftir miðvikudagsbrunchið.
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
mánudagur, september 06, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home