sunnudagur, október 10, 2004

dæææræræ

Eiginlega á Þóra þennann!!!!
Hæ dúllur. Í dag fór ég með Alex og Nínu að skoða skólann minn.Kíkið á hann! Það var upplifun útaf fyrir sig. Ég veit auðvitað lítið hvað ég er að fara útí en finnst þetta frábært. Það er líka svo gaman að læra. Maður þroskast og auðgast. Ég hlakka til að fara í fyrsta tímann sem er 2.nóv.

Svo keyrðum við Alex upp í vinnu en hann er farinn til Parísar til að taka allt dótið sem þeir byggðu upp fyrir sýninguna niður og keyra það heim í flutningabílum. Hann kemur á miðvikudaginn, sama dag og Sigga og Gummi koma. Ég er svo spennt að fá þau í heimsókn. Já það er ekki gaman þegar Alex þarf að fara í burtu til að vinna. Mér finnst það ekki gaman, þótt það sé nú ekki stutt, ég meina margir hugsa hvað er hún að kvarta, hugsaðu nú um millilandarskipin og svo framvegis. En það er eriftt að venjast þessu og þetta er ekki gaman. HANANÚ.

Já og síðan drifum við Nína okkur í bíó. Svaka stuð hjá okkur. Það var mjög gaman að sjá þessa mynd. Ekta þýsk leikin barnamynd, mjög skemmtileg, um stelpu sem er norn og getur flogið á kústinum sínum.

Nína er öll að hressast, tekur líka inn þessa svaka pilluskammta, þetta nær ekki nokkurri átt. Nefspray og gufubað (innöndun). En það virðist hjálpa og það er nú fyrir mestu. Læknirinn sagði að hún mætti ekki æfa sund. Það er svo sýkt sundlaugarvatnið, sagði hálsnef og eyrnarlæknirinn að kinnholurnar haldast endalaust sýktar ef hún hættir ekki, í bili amk. Ég meina það eru nú örugglega mismunandi skoðanir um þetta en hugsanlega er eitthvað til í þessu. AMk látum við reyna á það. Læknirinn hótaði að ef við færum ekki að taka almennilega á þessum síendurtekna vanda þá gæti hún endað með astma... (sagði þetta á mjög penan hátt) þannig að við verðum að gera okkar besta núna.

Jæja ég óska ykkur ánægjulegs sunnudagskvölds og bið að heilsa, ykkar....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters