Hversdagsleikinn
Það veitir mér alltaf visst öryggi sem ég þarf þegar hversdagsleikinn er orðinn með fastri dagskrá. Skrýtið hvað það er samt gaman að vera í fríi og gera eitthvað sem maður gerir aldrei heima hjá sér. Eins og að ætla að fara á Geirmundartind og fara svo bara á einhvern allt annann tind á Akrafjallinu og ná ekki settu markmiði. En það getur gerst þegar maður er ekki með leiðsögumenn eða réttar leiðbeiningar í förum sínum. Nú er stefnan tekin á Sauerland http://www.sauerland-touristik.de/de í haust. Við ætlum að fara í fjóra daga yfir helgina eftir að Sigga og Gummi eru farin. Þá leggjum við land undir fót og tökum nágrennið út, gangandi, syndandi og syngjandi, nei ég segi bara svona. Nágrannarnir hér ská á móti eru þegar búnir að plana sumarfríið sitt á næsta ári en þau ætla til Alecante með ódýru flugi og taka bíl. Það er auðvitað hægt að fá ódýrt flug þangað panti maður núna en omg, ég væri ekki til í að kaupa mér flug og plana svona langt fram í tímann. Sumir eru það greinilega....


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home