föstudagur, september 17, 2004

Frábær upplifun

Það var svooooo gaman í gítartíma í gærkvöldi. Já ég er byrjuð í hóptímum í gítar. Við erum 10 sem tökum þátt í námskeiðinu og það er gert ráð fyrir að maður kunni grunngripin, C, D, G, F...., E, e, A, og svo frv. Við fórum í það í gær hvernig hægt er að plokka í grunnhljómi lags sem verið er að spila. Ferlega sniðugt, kennarinn hann sagðist hafa unnið fyrir smá auka pening þegar hann var í skólanum með því að spila með vini sínum á krám. Einn spilaði alltaf hljómana og hinn plokkaði, þannig að í G dúr til dæmis fyrst plokkar maður g, á efsta streng, (E streng) í þriðja bandi svo tveimur böndum neðar á efsta streng og svo framvegis, þetta heitir eitthvað Fimmreglan.... Hann sagði að þetta væri nákvæmlega eins og svo margir Rafmagnsgítarleikar gera þegar þeir eru að gera sóló. Við prufuðum þetta við Let it be og það var kúl. Svo kenndi hann okkur svona algengustu slagtæknina en hún er slá: niður,niður,niður, upp, niður, upp. Þetta gildir fyrir lög í fjórðum, fjórða takti. Eru ekki flest lög í þeim takti? En mér fannst ég alveg hafa fundið sálufélaga í þessum kennara, fyndið ekki satt. Hann er eiginmaður trúarbragða og listgreinakennara Nínu. Bei ðe vei, hann benti okkur á lagalink með yfir 9000 lögum http://www.lyricsarchiv.de/ góða skemmtun.....

Annars höfum við Nína það bara fínt, þrátt fyrir að Alex sé ekki heima. Ég þurfti að fara út tvö kvöld í röð en hún er nú svo dugleg að það er lítið mál. Ég meina þótt hún sofni ekki..... það bíttar ekki. Við ætlum að kíkja til Pirjo og Martins um helgina, hún hringdi áðan og sagði að við ættum bara að koma, þau væru ekki búin að plana neitt og við gætum bara gert eitthvað skemmtilegt saman. Ég var nú ekki lengi að hugsa mig um. Tek bara pásu í súpunni þá. Er annars á góðri leið.

Það var verið að stilla píanóið, ég held í annað sinnið á 15 árum eða eitthvað, omg, hvað ég er léleg að hugsa um píanóið. En við getum þá aldeilis farið að gera músík, Nína á fiðlu, ég á gítar og Alex á píanóinu. Það er líka svo gaman eftir að við fluttum það, þetta herbergi er miklu bjartara og skemmtilegra til að spila. Við spilum líka miklu meira á píanóið núna.
Bið að heilsa í bili og góða helgi....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters