Við (litla kjarnafjölskyldan) skruppum í helgarreisu. Þar sem ég vissi að Óli bróðir ætlaði að vera með þetta svaka partý, Þóra í partý, Óli og Villi á Mörkinni á fimmtudeginum, Mamma með vinkonur sínar í sumarbústaðapartýi heima hjá sér í nýja húsinu með nýja heitapottinum og öllu dótinu sínu, þá varð ég að gera eitthvað þar sem París var frestað þar til um ókominn tíma. Við skruppum í lítinn bæ við stífluvatnið Möhnesee og höfðum það mjög fínt. Löggðum af stað héðan um þrjú leitið á föstudeginum og vorum komin heim aftur á sunnudeginum um sjö. Alveg mjög vellukkuð spila og hljóðfæraæfingarfjölskylduferð.
Svo er það bara þetta námskeið sem tekur allann minn áhuga þessa dagana, við erum að fara í gegnum hvernig maður kynnir sig í síma og sækir um vinnu í gegnum síma. Hvernig maður gerir pappírana sína á réttan hátt, miðað við þýskar umsóknir. Hvernig maður ber sig í atvinnuviðtali og hvað maður segir og hvað má alls ekki segja og svona. Mér finnst þetta mjög gaman ég segi það satt. Þetta er líka gott til að byggja upp sjálfstraustið hjá manni.
Svo er það auðvitað gítarinn sem tekur mikla orku og framleiðir líka mikla jákvæða orku. Ég hef svo gaman af þessu en þessi kúrs sem ég er í hann er allt of erfiður. Við áttum að plokka house of the rising sun, alla strengi nema streng nr 2 (D held ég), svona fljótandi, bara einu sinni upp og niður fyrir hvert grip, GLÆTAN AÐ ÉG GETI ÞAÐ. Ég er búin að reyna að æfa það en nó vei hósei. Svo erum við búin að læra tvær tegundir af slagtækni, ég meina maður er auðvitað með HÁVÆRASTA gítarinn í hópnum og reynir í gríð og erg að halda í við hina (sem eru allir nema einn með klássíska) og nær því ekki og heyrist mest í , mjög gáfulegt..... En hvað um það, ég hlakka til að vera orðin góð, ég er efnileg, amk segir Alex það!!!!
Jæja krúsís, það eru ekki nema tvær vikur þar til Sigga vinkona og Gummi koma í heimsókn til okkar, það verður gaman, jibbýýýý....
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
þriðjudagur, september 28, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home