París
Það verður ekki neitt úr því í ár. Jan átti að fara í aðgerð á auga og kemst ekki í hana fyrr en sama dag og ég ætlaði að fara til Parísar þannig að ferðinni verður frestað fram á næsta ár. Eins gott að við vorum ekki búin að panta hótel og svona. Þegar maður er með maka sem er 84 ára getur maður ekki planað langt fram í tímann. Heilsan skiptir meginmáli, en frá hvaða aldri gerir maður sér grein fyrir þessu eða er það fyrst við veikindi sem einstaklingurinn fer að hugsa út í mikilvægi heilsunnar?
Ég er hætt að reykja, hreyfi mig af og til, meira til og borða hollan mat og nammi. Er það nóg?


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home