Manía
Nei ég segi svona, ef ég væri maníódepressíf, þá væri ég sennilega í maníu núna. Ótrúlega mikið sjálfsálit, treysti mér að setjast á skólabekk, annað sinn í lífinu sem ég tek slíka ákvörðun. Já ég er að fara í nám, FÍNT!! Það er nú ekki gaman að segja frá því en eiginlega er þetta neyðarákvörðun í lífi mínu. Ég er nefninlega búin að komast að þeirri ákvörðun að líf mitt í Þýsku atvinnulífi sé óbærilegt!! Já þetta hljómar án efa krítískara en það er. Amk er ég algjörlega sátt við að atvinnulega sé staða mín óbærileg. Atvinnurekendur vita ekki hve góð ég er, hehehe, þarna náði ég ykkur. Nei málið er að ég er frekar ósátt við þá tilhugsun að starfa sem sjúkraliðahjálpari næstu ár okkar hér úti í Þýskalandi og þess vegna sá ég ekki neitt annað í stöðunni en að fara í eitthvað nám.
Námið heitir Heilpraktiker á þýsku og sennilega er samheitið á íslensku grasalæknir, ég er samt ekki viss. Málið er að maður fer í þykjustulæknisleik. Greinir samt ekki bara einkenni heldur líka persónugerð og áhrifaþætti á líf einstaklinga. Meðferð felst í rúmlega tveggjatíma viðtali og svo notar maður náttúruleg lyf, semsagt efnafræðitöfluna þarf maður að kunna og það eru um 2500 náttúruleg lyf sem hægt er að nota. Þessi meðferð er ekki einungis á sjúkdómseinkenni heldur líka á allt mögulegt. Ef maður svo finnur hið rétta efni, Globuli, eða kúlur eða eitthvað þess háttar á íslensku þá á sér stað mikil seitlun líkamsvöknva úr hinum ýmsu líkamsgötum, hehehe. Námið tekur eitt ár og er helvíti dýrt.... en það er sama, menntun er verðmæt...


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home