Allt að gerast
Hæ, já það er víst óhætt að segja að það sé stuð hjá okkur mæðgum þessa síðustu daga áður en Alex kemur heim. Við fórum í ferðarlag um helgina til Detmold og gistum hjá Pirjo og Martin, sem var bara fínt. Nína heimsótti vinkonu sína í Detmold sem vildi ekki að ég tæki hana með mér þegar ég sótti hana, algjört krútt. Á sunnudeginum þegar við fórum svo heim, komum við við í skemmtigarði sem var algjör upplifun, villt dýr og alls kyns tæki, en mér ´þótti sárast hvað buddan þurfti að þjást.
Í dag urðu svo kaflaskipti í atvinnuleysismálum mínum. Já ég byrjaði á námskeiði á vegum Atv.skr. og það í fjórar vikur. Bara ansi gaman, hitta konur í sömu stöðu, kjafta og gera eitthvað smá á tölvu. Ég hugsa að þetta verði bara gaman. Svo förum við í tveggja vikna verknám að námskeiðinu loknu. Ég ætla að reyna að koma mér í eitthvað ágætis verknám sem gæti svo kannski orðið að vinnu..... Hver veit hvað verður úr þessu. Ég fór í morgun og var mjög sátt með þetta námskeið og námskeiðshaldarann. Fannst gaman að heyra konur í atvinnuleit. Hugsið ykkur, ein konan þarna á börn 12 og 14 ára og er að koma núna fyrst aftur út á vinnumarkaðinn eftir 15 ára hlé. Krakkarnir eru ekki að fíla það að hún sé að fara að vinna. Amk annað barnið ekki. Hugsið ykkur kúgunina. Maður getur ekki ímyndað sér konu í svona stöðu á Íslandi. Ég meina 15 ár, þá væri ég orðin 45 ára, váh.
En svo er það svoleiðis hér að þrátt fyrir að maður fái atvinnuleysispening þá má maður vera í starfi sem gefur 400 evrur í aðra hönd. Þá beint í hönd. Já þvílík forréttindi, ég segi ekki annað. Best ég fái mér svol.vinnu, helv... að ég skuli ekki hafa vitað af þessu strax, búin að tapa 400 evrum á mánuði í hve marga mán, jú sirka 5 mán.... það er nú bara 2000 evrur, vá ég hefði getað kannski keypt mér buxur og skó fyrir það, hehehehehe


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home