Flug bókað
Já það var eins gott að það var tilboð hjá Iceland Express,,,,, ekki orð um það meir. Auðvitað eru þeir engin hálfvitar þannig að það var ekki boðið upp á ódýr flug í kring um páskana þrátt fyrir tilboð fram í mars 2005. Ég prufaði alla daga í mars, til 5.mars voru miðar á 4,0 GBP í boði en ekki eftir það. Þannig að ég keypti miða fyrir den hele familien á fullu verði takk fyrir. Þetta er nú ekki sérlega ódýrt en hvað um það. Maður er ekki Íslendingur fyrir ekki neitt....
Þá er bara að byrja að skipuleggja árgangaveisluna, reunion, fimmtán ára gagnfræðingar mundi mamma segja en við erum eiginlega bara fimmtán ára, hehe. Planið er að hafa þetta um páskana, nýta ferðina. Já ég er í nefndinni, alveg uppfull af hugmyndum, alveg sé þetta ljóslifandi fyrir mér hvernig þetta verður. Ég að spila á gítarinn allt kvöldið, sem sagt live music... Nei ég segi svona. Ein sem virkar alveg svakalega ánægð með sjálfa sig, já það væri gott ef ég væri það.... Alex er til í að búa til bloggsíðu með forum, fyrir árganginn, alveg væri það snilld, þar sem hægt væri að skiptast á skoðunum víst einn nefndarfulltrúinn er búsettur erlendis. Sjáum hvernig þetta fer...
Nína kláraði útsaumsmyndina á laugardaginn. Svaka sætur hvolpur, hún ætlar að gera púða úr þessu og sofa svo á honum, óska sér svo að hann breytist í alvöru hund. Kannski tekst það, hver veit. En á laugardaginn fór hún til afa Manfred, hún ætlar að ver þar í viku, að hjálpa til við heimilisstörfin og eitthvað fleira, ég held að hún sé mjög ánægð þar, alltaf fullt prógram, skemmtilegra en að hanga hér ein alla daga meðan ég og Alex erum að vinna. Hún kemur heim á sunnudaginn en Eveline og Jan ætla að koma með hana og vera nokkra daga í heimsókn.
Á föstudaginn ætlum við svo að skreppa til Höxter, þar verður flokksmót íslenskra gítarleikara í Evrópu haldið..... Eins gott að vera nógu stórorður... Miðar verða seldir við innganginn... Þetta er nú meira ruglið í mér, eins gott að engin tekur mark á þessu, það væri nú fyndið ef það mættu svo nokkur tugir manna.... Já og afmæli á laugardagskvöldið. Alltaf er maður á fullu í djamminu. Eins gott að ég leggi mig núna, svo ég sé orðin fersk á föstudaginn....


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home