sunnudagur, október 17, 2004

Heimsóknin

Hæ hæ kæru lesendur. Það er búið að vera mjög gaman hjá okkur síðustu daga sem sést helst á því að ekki neitt hefur verið bloggað eða tsjillað. Við höfum skoðað Munster og fórum í gær til Hollands en annars bara haft það notarlegt. Við borðum góðan mat og látum fara vel um okkur. Sem er jú mjög mikilvægt.

Nína er byrjuð að sauma út, svona fyrir krakka með hundamynd. Henni finnst það mjög gaman, allt annað en að prjóna sem á ekki við hana. Loksins kláraðist trefillinn fyrir Baby Born sem amma lilla byrjaði á fyrir rúmu ári síðan. Það var Sigga sem gerði það. En Sigga er einlægur ráðgjafi Nínu í þessu saumadóti. Ég verð að fara að læra þetta almennilega. Nínu finnst þetta svo gman að hún lét okkur alveg í friði til rúmlega 11 í morgun og þar með var það orðið of seint að sækja rúnstykki..... En það var nauðsynlegt að sofa smá. Við skelltum okkur aðeins á lífið í gær. Fórum á krá sem gerir sinn bjór sjálf, svol. spes bjór en mér finnst hann mjög góður sem sjundí með rabbabara og jarðarberja safa. Svo fórum við á hverfiskránna um 12 og vorum þar til 2 að drekka hinar ýmsu veigar sem fóru misvel í náungann..... Gaman að þessu, hehehe.

Ég er alveg í skýunum yfir því að hafa Siggu og Gumma í heimsókn, mjög ánægðir gestir. Sem tóku upp á því að elda matinn fyrir okkur á föstud.kvöldið og alveg frábær matur hjá þeim, þið getið séð uppskriftirnar á síðunni hans Alex undir Recipies, kíkið á það, kjúlli, októbersalat, hvítlaukssósa (köld) og kartöflu Wedges (eða hvernig í ansk. sem þetta er skrifað) mæli með þessu.... Þannig að mér fannst tilvalið að hafa það nú fyrir sið að gestir eldi eina máltíð... Frábært!! Koma svo!!!!!

ég ætla að láta þetta nægja í bili, orðið nógu langt, maður nennir ekki að lesa of mikið svona snemma sunnudags.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters