Vinna
Jæja þá eru þau Sigga og Gummi farin. Það var mjög gaman hjá okkur með þeim. Svona sumarbústararfílingur eins og Sigga sagði. Tíminn er bara mjög fljótur að líða. Við elduðum saman góðan mat, fórum í Wizard og drukkum vín, bjór og Irish Coffie sem er m.a. mjög gott með dooley líkjör eða bailyes eða Kahlua. Gaman, gaman. Skemmtileg tilviljun að Sigga hitti svo mömmu stuttu eftir að hún var komin heim, þetta er svo lítill heimur.
Nú er maður nánast búinn að ná upp svefninum sem upp á vantaði, auðvitað mikið í gangi þegar maður er í verknámi sem hjúkrunarnemi á ellideild og svona. OMG veit ekki hvort ég mundi geta unnið á svona elliheimili hér úti, kannski er þetta ekki svo ólíkt því sem er heima en þetta er einfaldlega ekki minn heimur. Ég sem var voða kúl, bara einhverja vinnu til að fá smá pening til að borga námið mitt sem byrjar eftir tæpar tvær vikur. En það er ekki inni í myndinni.
Ég ætla að æfa mig aðeins á gítarinn í dag, verð að halda mér við, það eru tvær vikur í skólafrí og þá er ekki gítartími. Sigga þú ætlaðir að senda mér einhver lög, bara að minna á mig.
Jæja elskurnar, ætla að hjálpa Nínu aðeins að halda áfram að sauma út, Sigga var svo dugleg að styðja við bakið á Nínu, nú verð ég að kíkja á leiðbeiningarnar,,,,,


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home