Námskeiðið, gítarinn og lífið
Hæææææ
Þetta er nú meira námskeiðið. Það mætti halda að maður væri í leiklistarskóla Þýskalands eða eitthvað. Ég sver það. Í morgun fórum við í leik. Já í leiknum eru tólf konur og eitt band. Leikurinn gengur út á það að vekja þessar konur. Niðurstaða leikjarins er að á bandið á að koma einn hnútur. Svaka mál eða þannig. Prufið þetta með konum á aldrinum 19-44 ára. Þið eigið eftir að komast að því að konurnar geta þetta. Hópurinn sem ég var í í morgun gátu það EKKI og svindluðu. En þetta var svosem allt í lagi byrjun því það sem á eftir kom frá 9-12:15 var að ´tólf konur, fjórar í hóp þurftu að leika sama leikþáttinn fyrir framan hvor aðra. OMG ég braust auðvitað út úr sjálfri mér og hafði þokkalega gaman af því að hrista upp í liðinu eins og mér er einnri líkt. Alltaf gaman í þykjóleik. En ef maður spáir í því að atvinnuleysisskrifstofan sé að borga undir rassinn á manni fyrir svona þá fær maður hláturskast......
Gítarinn er að finna sitt líf hér hjá mér. Hann er misgóður að hjálpa mér við æfingarnar. Best er að plokka á efsta strenginn(E) (eins og á bassa) og slá svo. Ég er ekki alveg að ná þessu að slá á E og plokka svo D, G og E eða hvað þeir heita þrír neðstu. Flott lag sem við erum að gera núna er auðvitað Father and Son og I should have known better ásamt fleirum. Ég ætlaði að reyna að gera G gripið þannig að ég notaði löngutöng, baugfingur og lilla en það gengur ekki upp hjá mér. Það gengur heldur ekki upp hjá mér að gera F grip, ég er alveg ráðþrota yfir því. Ég get alveg gert það grip og slegið á en EKKI Í LAGI, ÞAÐ TEKUR OF LANGANN TÍMA. Gaman að þessu ekki satt. En mér finnst ferlega gaman að geta spilað eitthvað á gítarinn og finn hvernig sjálfsálit mitt eykst með hverju laginu..... spes en svona er þetta :-)
En svona er lífið og með þeim orðum enda ég pistil dagsins, lifið heil


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home