Víst að...
Hæb
Það er nú meira hvað amður er eitthvað andstuttur þessa dagana. nína ekki heima, Alex að vinna, ég að vinna í sjálfboðaliðavinnu á elliheimili. Svei mér þá.
Já hey, Nína hringdi í gær. Alveg hæææ voða gaman en maður heyrir alltaf svona smá ég hlakka til að koma heim í röddini þegar maður talar of oft saman. En hún hefur það gott hjá afa sínum og Waltraud ömmu og nýtur þess að fá alla þessa athygli. Þau voru að versla í gær, alveg merkilegt hvað börn geta farið með öðrum í búðir heldur en foreldrum sínum. Ætli ég hafi líka verið svona? Nei örugglega ekki, mér fannst örugglega gaman að fara í búðir, rella, rella, rella. Amk væri það alveg minn stíll að nenna að fara í búðir. Hvað er þetta eiginlega með börn og búðir?
Svona grátt rigningarveður leiðir til þess að maður leggur sig, er það ekki? Jú það held ég nú, FYRST að ég er ein heima og hef næði í nokkrar mínútur fyrir sjálfri mér´þá ætla ég að nota tækifærið. Hver veit hvenær það kemur annað svona tækifæri.
Um helgina verður breytt tímanum hér í Þýskalandi. Þá eru ekki lengur tveir tímar í mismun heldur bara einn. Þannig að klukkan sex eftirmiðdags verður þá klukkan fimm og þá fjögur á Íslandi. Gaman gaman, ég get þá sofið einum klukkutíma lengur á sunnudaginn. Þetta er svo sérstakur siður í mörgum evrópulöndum, skrýtið að Íslendingar hafi ekki tekið þetta upp. Kannski af því að þetta er ekki siðað í Ameríkunni!!! Þeir þykjast spara rafmagn og hita við þetta, þá er bjartara á morgnana (og þar af leiðandi dimmir fyrr á kvöldin, spes ekki satt).


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home