Flóamarkaður
Í lok markaðarins stóð Nína uppi HELJARINAR sölukona. Hún var búin að selja heilan helling og græða 37,90 Evrur. Geri aðrir betur! Hún vildi vera ein og var það líka, flestir voru einir en einnig var eitthvað um það að foreldrarnir sæu alfarið um markaðinn. Ég áætla að það hafi verið um 15 markaðssölueinstaklingar. Margt var til boða. Mikið um bækur, púsl, barnaleikföng úr plasti, bangsar, kasettur, vídeospólur og eitthvað fleira. Hún var mjög ánægð með þetta og bauð okkur á McDonalds í kvöld. Það var gaman. Reyndar var svo mikið að gera að við borðuðum heima og slepptum þar af leiðandi ísnum. Skiptir ekki máli en það er gaman að vera níu ára og geta boðið foreldrum sínum út að borða eftir heljarins sölu á markaði.
Já þetta voru boðorð dagsins í dag. Frekar leiðinlegt hvert verkfall kennara er að beinast. Enginn skilningur frá menntamálaráðherra og leiðindi í gangi, fólk orðið reitt og sárt útí sveitafélög og samninganefnd ríkisins.
Á morgun ætlum við að elda gæs, það verður gaman að borða hana. Við vorum eiginlega búin að skipuleggja þannig að við færum á vínsmökkun til Manfreds og Waltraudar um helgina en þar sem fyrirsjáanlegt var að við gætum hvort eð er ekki leyft okkur að kaupa þessi dýru og góðu vín sem við fengjum að smakka ákváðum við að vera frekar heima, uhhuhh. En það er allt í lagi því nú er ég í skólanum á föstudögum frá 16-19 og þess vegna er ekki svo hentugt að vera að vesenast þetta. Ég skil ekki hvað við erum ferðarglöð, það er næstum alltaf eitthvað á dagskránni.
Jæja krúttís nú veit ég ekki hvort ég á að setja inn mynd af okkur og svona ef perrarnir skyldu vaka yfir okkur. Jú ég skelli bráðum inn mynd, FÍNT!!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home