sunnudagur, nóvember 07, 2004

Umskrifa Peninga

ohh ef það væri nú jafn auðvelt að umskrifa peninga eins og að umskrifa lög. Já ég er alveg komin á fullt í að umskrifa lög núna. Svo ég geti spilað. Nú er ég bara að velta einu fyrir mér, í hvaða tóntegund er best að hafa lögin í upp á þægilega raddbreydd. Bannað að segja í F-dúr!!! Nú og svo langar mig í uppástungur hvernig hægt er að spila Kveikjum eld því það er hrikalegt hvernig þetta lag er þar sem ég hef skoðað það og Við varðeldana voru skátar. Gaman væri líka ef lesendur mundi benda á lög sem þeim finnst að verði að syngja sé gítar við hönd.

Annað mál á dagskrá í dag er að umskrifa peninga, ef einhver situr á peningavél í kjallaranum er hann vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram, gæti þegið að lána vélina.... óþolandi þegar maður þarf að snúa hverri krónu þrisvar við áður en maður eyðir henni.. Vandinn er bara sá að ég er alltaf búin að eyða öllu þegar ég fatta að ég hefði átt að spara.... Þess vegna er ég desperate að leita mér að vinnu þessa dagana. Ég finn á mér að ég eigi eftir að verða heppin núna!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters