óheppni
Já ég var heldur en ekki óheppnin í sambandi við annars ágæt flug sem ég keyptir fyrir fjölskylduna. Í vetraráætlun Icelandexpress hætta þeir með flug til London fyrripart dags. Sem þýðir að við náum ekki tengifluginu ogkkar til Þýskalands. Ég er búin að vera að skoða þetta fram og til baka og eftir miklar umræður á heimilinu og hugsanagang þá ákváðum við hjónin í sameiningu að fá endurgreitt. Já svo sorglegt að það er en bara sjit, við gætum náð flugi frá Dusseldorf eða Munster en þá erum við kominn í miklu meiri peningaútgjöld en ódýrt flug á að kosta þannig að við vonum nú að Flugleiðir bjóði upp á ódýr flug til Íslands yfir páskana. Ef í hart fer og flugleiðir bjóði ekki upp á neitt ódýrt þá kem ÉG ein yfir páskana.
Þetta er svaka pakki að koma heim í heimsókn, þannig að það er ekki hlaupið að neinu. Við ætlum að fara í sumarfrí til norðurlandanna næsta sumar og þess vegna verðum við aðeins að spara. Vildi bara deila þessu með ykkur, ég er ekki ánægð með þessa ákvörðun og ég vill koma með alla fjölskylduna en sættist líka á að koma ein ef Flugleiðir svíkja okkur... :-(
Nú er ég að byrja að læra, já ætla að taka daginn í það og á morgun fyrir hádegi.
Heyrðu ég verð að segja ykkur frá einu, í skólanum hennar Nínu er verið að útbúa heimasíðu, hver bekkur á að fá sína síðu. Krakkarnir komu þess vegna með blaðsnepil heim fyrir nokkru þar sem foreldrar áttu að krossa við í tveimur af fjórum reitum. Einn reitur var :Má birta mynd af barninu þínu á internetinu, NAFNLAUST!!! Næsti: Ég vil ekki láta birta mynd af barninu mínu á internetinu. Þriðji: Má nefna fornafn barnsins þíns á internetinu? Fjórði: Ég vil ekki láta birta nafnið af barninu mínu á internetinu! Hvað finnst ykkur. Ég var ekki í neinum vandræðum að fylla þetta út en mjög margir foreldrar kæra sig ekki um að barnið þeirra komi á internetinu því það eru svo margir perrar sem nota internetið, HAHAHAHAHAHAHAHA algjört brjálæði hér í landi reglna og siða.
Annað í tengslum við skólann, Nína ætlar að vera með stand á flóamarkaði í skólanum á laugardaginn. Við vorum í gær að púsla púsl sem hún ætlar að selja og taka til í herberginu, hvað mætti nú fara og hvað ekki. Mjög áhugavert, hún vill vera ein í þessu, við vorum að verðmerkja hlutina, hún ætlar að selja nokkrar bækur (3 Evrur), púsl (3 Evrur), spil (3 Evrur), litla bangsa (50 cent) stóra bangsa (1 Evru), gömul tímarit sem hún hefur keypt sér (20-50 Cent eftir því hvort hún er búin með allar krossgátur og aðrar gátur í blöðunum), barna síma með statífi (3 Evrur), gamla lionking kasettutækið sitt (5 Evrur) og eitthvað fleira, hún var alveg í sínu elementi að verðleggja og spá í þessu í gær. Fannst pabbi sinn ekki hafa vit á verðmæti þegar hann sagði að hún væri með eitthvað of dýrt!!! Ég læt ykkur svo vita hvernig gekk að selja!


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home