I´m alive
Hæ dúllur.
Á stórmóti íslenskra gítarleikara í Höxter um helgina var frekar dræm þátttaka... Ég og Lúlli rokkari vorum stórglæsileg þótt ég segi sjálf frá. Það hefði kannski mátt vera ein æfing áður en við f´rum á stóra sviðið en þetta reddaðist allt. Við spiluðum allt milli himins og jarðar (lög sem voru ekki með F) ó jósep jósep, fatlafól, stál og hnífur, let it be, súrmjólkurlagið, hótel jörð, og margt fleira sem ég man ekki. En það var mjög gaman. Eiginlega stórmerkilegur viðburður að maður sé svona góður á gítar þrátt fyrir stutt nám og litla kennslu (Lúlli gerir allt í sjálfsnámi). Miðað við önnur hljóðfæri er án efa auðveldast að spila á gítar, s.s. að spila á fiðlu eftir nokkra tíma er mjög erfitt, maður getur ekki spilað öll lög sem maður vill, eða píanó....
Nú og svo eftir að við komum heim þá kom loksins Nína. Það var nú gott að fá hana heim, ég er ekki viss um að hún hafi verið jafn fegin að koma. Búin að fá að gera allt milli himins og jarðar, fara í dýragarð, bíó, að versla dót fyrir sig, borða mikið nammi og óhollustu fæði og fara mjög seint að sofa. Auðvitað tekur svo einhverntíma hversdagsleikinn við en það var ekki alveg eftir hennar höfði. Gaman að þessu, mér finnst mikilvægt að börn séu einhversstaðar þar sem þau mega allt, eru lofuð og allt gert eftir þeirra ósk. Því hversdagsleikinn er nógu mikið streð með skólanum hér, heimalærdómnum og öllu sem því fylgir.
Jæja að jólaundirbúningi, ég er búin að óska þess á síðunni frá hjúkkunum að þær sem eru í kortagerð vinsamlegast gefi lýsingu á gerð kortanna. Það væri gaman ef þeir sem eru í slíkum undirbúningi gerðu slíkt hið sama hér á síðunni. Ég er enn óákveðin í sambandi við kortin... Gaman er að minnast þess að hún Eveline tengdamóðir mín er nánast búin með jólasmákökubaksturinn þetta árið..... Já sumir eru eitthvað órólegir yfir þessu að ná því ekki og kannski væri ráðlagt að byrja bara í ágúst að búa til deig og svona á næsta ári svo maður nái nú öllum þeim tíu sortunum. ÉG ER EKKI BYRJUÐ.
Já hey, svo var ég fyrsta daginn í skólanum mínum á þriðjudeginum. Eins gott að taka fram anatómíu skrudduna mar, já öll bein, vöðva og svo framvegis utanbókar, Á ÞÝSKU TAKK!!!
Gaman að minnast á það að það er grein eftir hana Gíslínu Ernu frænku í tímariti Hjúkrunarfræðinga. BS verkefni hennar var greinilega um Downsheilkennið. Gaman að vera búin að birta grein, en það er jú mikilvægur þáttur í sambandi við framhaldsnám.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home