Rádýr og hnetur
Það er svo mikið um hnetur alls staðar hjá okkur núna, úti í skógi, á göngustígum. Aðalsportið hjá Nínu er þessa dagana að tína þessar hnetur ( ekki valhnetur) og gefa rádýrunum þær. Rádýr eru svona litlir bambar eða litlir Hirtir.
Hún Nína er núna í afmæli hjá Kathi sem er ein í bekknum hennar. Afmælið byrjaði kl.10 og stendur til 13. Þau eru í matreiðslutíma að búa til vanillubúðing, franskar og eitthvað meira. Rosalega spennandi því þau eru aldrei í matreiðslu í skólanum.
Ég hvet ykkur til að lesa fyrirlestur um stöðu feðra á síðu Óla bróður www.rokkidlifir.blogspot.com sem hann hélt á ráðstefnu uppeldis- og menntunarfræðinema við Háskóla Íslands á fimmtudaginn sl.
Einnig hvet ég til súkkulaðineyslu en það er betra að borða dökkt súkkulaði en ljóst. Súkkulaði er gott fyrir taugarnar og blóðið. Góða helgi


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home