Fyrirlesturinn
Fyrirlesturinn var mjög áhugaverður, alls ekki eitthvað grófur eða þannig, meira á læknisfræðilegu hlið þessa áhugaverða málsefni.
Sem sagt "yndislegasti hluti lífsins" eins og fyrirlesarinn ákvað að nefna byrjunina á kyn... fyrirlestrinum er mjög efnafræðileg staðreynd. Meðaðtími(meðaltalið) eru 11 mín, en getur að sjálfsögðu tekið mun lengri tíma. Maður brennur um 500 kalóríum, reynir á líkamann, eins og að ganga stöðugt upp tröppur í 11 mín. Jákvæð áreynsla fyrir hjartað, betra enn að ganga stiga, rífast eða moka snjó. Æðakerfið fer á fullt en slakar svo á á eftir.... Húðin verður betri, það að svitna hreinsar poren og hjálpar til við blóðfræði, gott í að vinna á Celluliti og æðahnútum. Hjá karlmönnum vinnur einnig vel á móti sjúkdómsmyndun í Prostata.
Við athöfnina (ath. að nota engin orð sem tengjast málefninu visvítandi) koma mörg hormón að verki og mikilvægt er að ástin skiptir mjög miklu máli í sambandi við gæðin! Því án ástar eru gæðin mun minni. Hvert hormón hefur mikilvægt hlutverk, t.d. í sambandi við það hvort maður þolir yfir höfuð lykt af einhverjum, hvort maður óski eftir nærveru (knúsa), hvort maður líti vel út og sé með útgeislun. Endorphine losna út í líkamann og eru í virku formi í uþb einn dag. Prólaktín kemur í veg fyrir/vinnur á móti streitu. Reynist einnig gott fyrir konur sem eru með mígreni, höfuðverk, gigt, bakverk og minnkar neikvæð áhrif tíðarhringsins og virkar verkjastillandi. Getur haft læknandi áhrif í sambandi við taugabrenglanir, nýtni á vítamínum verður meiri í líkamanum, eykur heilastarfsemi og hægri og vinstri heilahvol vinna betur saman, sogæðakerfi styrkist og virkar konur fá síður beinþynningu. Námkvæma líffræðilega útskýringu er ekki búið að koma með.
Á fyrirlestrinum voru 14 einstaklingar, þar af fjögur pör. Flest voru þetta náttúrulæknar (Heilpraktiker) sem voru opnir fyrir umræðunni en einnig fólk sem sýndist vilja persónulega ráðleggingu.
Mikil umræða skapaðist í sambandi við framhjáhöld en þar sagði fyrirlesarinn að hann væri í raun ekki fylgjandi því að í sambandi þyrfti maður að tala um allt. Þannig að það gæti verið að á ákveðnum tímapunkti hjálpaði framhjáhald (tímabundið) ef viðkomandi gæti þagað yfir því og lifað með þessum trúnaðarbresti en í dag væru svo margir sjúkdómar í gangi og að því leitinu hættulegt. Fyrirlesarinn var 36 ára, skilinn og hann sagði að eftir því sem hann yrði eldri (ungur maður!!) þá kæmist hann alltaf betur og betur að því að það væri betra að þaga yfir sumum hlutum (skilji þetta hver eins og vill). Amk væri hann ekki fylgjandi kennslubókum í sambandi við stöður í þessum efnum því það gæfi okkur, almenningi þá tilfinningu að við værum ekki að gera hlutina rétt. Góður punktur að mínu mati. En hvatti til ýmissa lestrarbóka um málefnið.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home