þriðjudagur, nóvember 16, 2004

Kynlíf og heilbrigði

Vil byrja á að benda ykkur enn og aftur á síðuna sem Alex er stöðugt að endurbreyta og bæta. Þar er nú komin gestabók, sem ég er bei the way ekki með, hægt að skoða myndir og lesa og setja inn uppskriftir. Kíkið á þetta

Að öðru og sérkennilegra málefni. Í skólanum mínum er á fimmtudagskvöld fyrirlestur sem sálfræðingur og náttúrulæknir (Einn maður, kalla hér Naturheilpraktiker náttúrulæknir, er ekki skrásett vörumerki) heldur. Fyrirlesturinn kallast kynlíf og heilsa/heilbrigði og fjallar um jákvæð áhrif kynlífs á heilbrigði einstaklinga. Ég er alveg búin að sjá fyrir mér að ég eigi eftir að halda þennan fyrirlestur í Hátíðarsal Háskóla Íslands einhverntíma. Haldið þið að þið munduð amk ekki mæta og taka bestu vinkonu, vin eða ástarleikmann með ykkur. Ég ætla meira að segja að skrópa í gítartíma til að missa ekki af þessu einstaka tækifæri.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters