St.Martins gæsin
Tókst vel þrátt fyrir smá tilraunastarfsemi. Vorum með heila gæs fyrir okkur þrjú, já við erum frekar miklir matmenn. (Var mjög hissa þegar ég keypti gæsina, 4 kg kostuðu 9,98 Evrur, sem er innan við eittþúsund krónur, er þetta eðlilegt, heil gæs, reyndar aligæs en só...). Já viðgetðum ekki neina fyllingu þar sem við vorum bara þrjú og þess vegna þurfti gæsin auðvitað miklu styttri tíma í ofninum. Við höfðum hana 2,5 klst í ofninum á 180 gráður, fyrst í steikingarpottinum og svo síðasta hálftímann á grind (ath, ofninn var ógeð á eftir því það sprautast fita úr gæsinni í allar áttir). OHHHH hún var svo góð, alveg einstakt hvað það er gaman þegar vel tekst til að elda eitthvað sem maður eldar sjaldan. Ég er nefninlega ein af þeim sem er alltaf bara með nokkrar uppskriftir í gangi og er lítið að tilraunast nema kannski þegar koma gestir. Þannig að ég hvet alla til að benda mér á góðar uppskriftir. Vel þegið í alvöru.
Já þetta var eiginlega það sem gerðist í dag. Við hjónakornin erum búin að vera í maraþon púsli um helgina, 1000 stykki. Landslagsmynd eins og úr ölpunum með svona svartaskógshúsi með blómum og grasi og miklum himinn. Alex alveg:,, Hvar eru nú bræður þínir þegar maður þarf á þeim að halda". Það var nefninlega púslað mikið í Detmold yfir jólin í fyrra og ég tók ekki þátt í því en nú er ég búin að vera svaka dugleg. Mér finnst gaman að púsla, það er ótrúlegt hvað tíminn líður þegar maður situr yfir svona litlum stykkjum.
Hey, já komin lagasetning á kennara, alveg fannst mér merkilegt sem ein móðir sagði í íslensku fréttunum á laugard.kv. Það væri sko alveg víst að hér hefðu krakkarnir verið sigurvegarar í þessu máli með kennara verkfallið og lagasetninguna því þeir mættu mæta í skóla og svo framvegis. Ég hugsaði með mér, er það gott fyrir börnin að óánægðir kennarar sem finnst það hafi verið allverulega traðkað á þeim séu píndir til vinnu til að kenna? Merkilegt þegar maður er svona eigingjarn og sér bara eina hlið á málum.
Bið að heilsa í bili, ykkar Helga


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home