föstudagur, nóvember 26, 2004

Helgin komin!

Það er svo gaman þegar það koma helgar. Þá erum við öll saman, fjölskyldan og gerum eitthvað í sameiningu. Við ætlum að skreyta, eins og örugglega mjög margir, borða smákökur, fara á bókasafnið og hlusta á lestur úr jólabók, hlusta svo á tónlist sem ungir nemendur tónlistaskólans spila í bókasafninu. Gera aðventukransinn og fá okkur Gluhwein, híhí. Það er gaman að vera saman.

Í gær í gítartíma vorum við bara tvær úr nemendahópnum og kennarinn. Næst, sem er síðasta sinn, ætlum við að fara yfir nokkur jólalög, gaman, gaman. Fórum í gegnum TAB skriftina, gaman að vera alltaf að læra eitthvað nýtt! Ég er bara mest svekkt yfir því að næsta önn fer kennarinn í gegnum sama efni og við erum búin að fara í gegnum. Tilgangslaust að fara tvisvar í sömu lögin og svona, ég veit ekki hvað ég geri, eða hvort ég mæti bara samt til að læra að vera lagnari við að plokka og svona. Þetta er nefninlega svo ógeðslega ódýr kúrs, kostar tæpar 4000 ískr fyrir 10 skipti með gítarkennara! Geri aðrir betur. En Óli þetta væri nú hugmynd sem þú gætir framkvæmt, að bjóða upp á gítartíma, (hóptíma, 10-15 manns) fyrir byrjendur og svo fyrir lengra komna, slatta peningur í því! Fyrir svona áhugamenn, þetta er auðvitað annað en maður lærir í tónlistaskóla en maður lærir samt og það er það sem skiptir mig máli, að ég þróa mig áfram.

Í dag fer ég til Munster í skólann, það væri nú gaman að kíkja þar aðeins niður í bæ og fá sér einn Gluhwein! Það er víst svoooo flottur jólamarkaðurinn þar, verð að tékka á þessu.

Það er reikningspróf hjá Nínu í dag, þau eru alveg að gera sig vitlaus af stressi þessi blessuðu börn yfir því í hvaða skóla þau fái meðmæli frá kennaranum. Á miðvikudaginn er foreldrafundur, sjáum hvað kemur útúr því....

jæja krúsínurnar mínar, mig langar að lokum að benda á mjög góðar og auðveldar smákökur sem eru í kökubók Hagkaups, svona súkkulaðibitakökur sem heita held ég konfektkökur og eru með höframéli, púðursykri og kókos ásamt fleiru, mana ykkur að gera þær, eru dúndurgóðar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters