þriðjudagur, nóvember 23, 2004

Jólahvað

Við fórum á jólamarkað á laugardaginn. Það var verið að kveikja á öllum jólaljósunum í bænum, frábær upplifun í rigningunni!! Til að hlýja okkur um hjartarræturnar fengum við okkur svo jólaglögg og Bratwurst sem var auðvitað upplifun jólanna. Við fórum niður í bæ til að kaupa gjafir. Já við ætlum að gera jóladagatal hér á heimilinu. Heimatilbúið og hver okkar, Helga, Nína, Alex kaupum átta gjafir, fjórar fyrir þau hin. Semsagt ég keypti fjórar gjafir fyrir Nínu og fjórar fyrir Alex og Alex keypti fjórar fyrir mig og Nínu og Nína keypti fjórar fyrir Alex og fjórar fyrir mig. Hver gjöf má ekki kosta meira en 1 Evru. Það er nú auðveldara sagt en gert að kaupa gjöf fyrir eina Evru. En það tókst og nú bíða heimilismeðlimir spenntir eftir fyrsta des. Á hverjum degi verður bara einn pakki opnaður þannig að ég byrja og Nína endar á 24.des, hún bað sérstaklega um það. Auðvitað er samt ekki stærri pakki þá því það má ekki kosta meira en 1 Evru. Þetta varð því valdandi að það skapaðist skemmtileg jóla og aðventustemming hjá okkur.

Við erum líka byrjuð að baka jólasmákökur, Alex er svo drífandi í því og hann er búinn að vera duglegasti bakarinn á heimilinu þrátt fyrir að Nína sé aldeilis að vinna á í þeim efnum. Hún bakaði skinkuhorn með bekkjarsystur sinni hér hjá okkur í seinustu viku og á föstudaginn (á meðan pabbi hennar var að fletja út smákökudeig) ákvað hún að baka kanilsnúða úr kökubók Hagkaups. Ég var í skólanum og þegar heim kom eftir hann þá beið mín þessi yndælis baksturslykt og nýbakað bakkelsi. Lovit.

Nína fékk póst frá Siggu á föstudaginn en hún var að prjóna á hana röndótta litríka peysu sem er mjög Nínuleg. Ég ætla að koma með mynd af henni hingað við tækifæri. Tollverðirnir opnuðu pakkann, kannski útaf nóakroppinu sem var til mín, þeir hafa eflaust haldið að það væru hasskúlur sagði Sigga, góður!!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters